1
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

2
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

3
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

4
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

5
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

6
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

7
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

8
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

9
Menning

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar

10
Heimur

Þekktur handritshöfundur lést í bílslysi

Til baka

„Fólk með milljónir á mánuði veit ekkert hvernig er að lifa með krónunni“

„Við eigum að fá frið fyrir þeim sem njóta forréttindanna“

Signý Sigurðardóttir
Signý SigurðardóttirSakar elítuna um veruleikafirringu: „Mér er rosalega misboðið“
Mynd: Facebook/Signý Sigurðardóttir

Signý Sigurðardóttir viðskiptafræðingur og stjórnmálakona segist hafa snöggreiðst þegar hún heyrði rökstuðning Áfram Íslands. Gagnrýnendur Áfram Íslands telja málflutning þeirra einkennast af veruleikafirringu og að tölfræði sé hagrætt til að fegra stöðuna á íslenskum vinnu- og húsnæðismarkaði. Vaxandi hiti er í umræðunni um framtíð íslenska efnahagskerfisins og gjaldmiðilsins og sú röksemdafærsla að Ísland sé í „afburðadeild“ þegar kemur að velferð almennings mætir nú harðri andstöðu frá fólki sem stendur í stríði við hátt vaxtastig, verðtryggingu og eftirköst efnahagshrunsins.

„Ég snöggreiddist í gær þegar ég áttaði mig hvers konar málatilbúnað elítan í Áfram Ísland hefur sett fram til að rökstyðja mál sitt um að við eigum að segja nei í ágúst.“

Horft fram hjá afleiðingum hrunsins

Gagnrýnendur benda á að málflutningur þeirra sem verja núverandi kerfi taki iðulega mið af upphafspunktum í tölfræði sem þjóni hagsmunum þeirra, á meðan horft sé fram hjá hruninu og þeim varanlega skaða sem það olli á lífskjörum almennings. Efnahagshrunið hafi ekki síst stafað af gagnrýnisleysi og hjarðhegðun innan viðskiptalífsins, en afleiðingarnar hafi bitnað þyngst á venjulegu launafólki sem enn eigi erfitt uppdráttar.

„Ég skil ekki hvernig það getur viðgengist að ég og við "venjulegt launafólk" á Íslandi þurfi að standa í stríði við elítu sem er með margar milljónir á mánuði í tekjur og veit ekkert um það hvernig það er að þurfa að borga íslenska vexti af húsnæðisláni í hverjum mánuði og að auki verðtryggingu og verðtryggða vexti af námsláni.

Þetta er eitthvað svo stórkostlega rangt og kolgeggjað. Að þessi elíta telji sig hafa heimild til þess að setja fram tölur sem sýna mynd af því að Ísland sé í "afburðadeild" þegar að velferð hins venjulega manns kemur og nota til þess upphafspunkt sem hentar þeirra málflutningi. Tekur ekki hrunið með í reikninginn - hrunið sem eyðilagði líf okkar margra - leiddi til þess að við áttum ekki sjens eftir það,“ segir Signý í opinberri færslu.

Ekki enn komin með milljón á mánuði í tekjur

„Mér er rosalega misboðið og mér er alveg nákvæmlega sama þó að það fari í illa í einhvern.

Það er algjörlega morgunljóst í mínum huga að fólk með margar milljónir í tekjur á mánuði hefur enga vigt í þessari umræðu. Enga. Það veit ekkert um það hvernig það er að lifa með íslenskri krónu frá mánuði til mánaðar alla ævina. Hefur ekki hugmynd.

Sú er þetta ritar orðin 63 ára og borgar enn 150.000 af 20 milljóna króna húsnæðisláni og 30.000 kr. af námsláni. Búin að vera á vinnumarkaði alla tíð síðan ég var 15 ára þar til mér var útskúfað eftir hrun en náði mér á strik aftur síðustu tvö ár. Ekki enn komin með milljón á mánuði í tekjur.

Mér finnst það ekki í lagi að hafa þurft að upplifa hrunið á Íslandi fyrir 18 árum síðan og að sama elíta og kom okkur þangað fái að standa í vegi fyrir því að við fáum að eiga sjens á að losna undan krónunni.

Hrunið snerist ekki um "vonda einstaklinga" eins og margur hefur viljað halda fram. Hrunið snerist um hjarðhegðun og gagnrýnisleysi heils hóps í viðskiptalífi landsins sem leyfði öllu að keyra hér fram af brúninni án þess nokkurn tíma að reyna að stöðva það sem var í gangi.

Þessi hópur virðist nú ætla að koma í veg fyrir að við fáum að eiga möguleika á að breyta efnahagsumhverfi okkar til framtíðar.

Það kemur einfaldlega ekki til mála. Þessi hópur á ekki að hafa neina vigt í þeirri ákvörðun sem framundan er.

Við eigum að fá frið fyrir þeim sem njóta forrréttindanna.

Það er algjörlega morgunljóst og á ekki að þurfa að segja það einu sinni.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn
Pólitík

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

Loka auglýsingu