1
Heimur

Breskur ferðamaður lést tíu mánuðum eftir banaslys á Lanzarote

2
Innlent

Guðný kallar eftir viðbrögðum yfirvalda vegna heimsóknar ísraelsks hermanns

3
Minning

Skúli Steinar Pétursson er fallinn frá

4
Heimur

Kaffimógull ákærður fyrir að drekkja níu ára dóttur

5
Fólk

María ræðir ferilinn, barnsmissinn og uppgjörið við fortíðina

6
Fólk

Fimm duldar ástæður fyrir því að þú laðast alltaf að röngu fólki

7
Minning

Gunnar Þórðarson látinn

8
Heimur

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs

9
Innlent

Eva segir dómarann hafa dregið „víðáttuvitlausar ályktanir“ í máli Skúla Tómasar

10
Heimur

Geimrusl frá Musk rekst brátt á tunglið á 8.750 kílómetra hraða á klukkustund

Til baka

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó

Einkennist af appelsínugulum vörum og ljósum blettum í kringum munninn.

Apakötturinn
ApakötturinnApakötturinn er sagður hljóðlátur og dulur

Vísindamenn hafa staðfest uppgötvun á nýrri apakattategund djúpt í regnskógum Lýðveldisins Kongó. Tegundin einkennist meðal annars af appelsínugulum vörum og ljósum blettum í kringum munninn.

Apakötturinn, sem hefur hlotið fræðiheitið Colobus congoensis, fannst í Lomami-þjóðgarðinum í austurhluta landsins. Þótt íbúar svæðisins hafi lengi þekkt dýrið undir nafninu Likweli hefur það ekki fyrr en nú verið viðurkennt sem sérstök tegund í vísindaritinu PLOS One.

Náttúruverndarsinnar náðu fyrst ljósmynd af dýrinu árið 2008, en myndin sýndi aðeins hluta þess og vakti grun um að um óþekkta tegund væri að ræða. Það var síðan árið 2018 sem rannsóknarleiðangur undir stjórn Jean Pierre Kapale staðfesti tilvist apakattarins með frekari ljósmyndum á mismunandi stöðum.

Á árunum 2018 til 2022 sáust apakettirnir alls 114 sinnum á um 1.700 ferkílómetra svæði í skógum Kongó.

Samkvæmt rannsókninni er svartur feldur tegundarinnar, ljósir blettir í kringum munninn og hvítur blettur aftan til ólíkur því sem þekkist hjá öðrum prímötum á svæðinu.

Vísindamenn segja að þetta sé aðeins í fimmta sinn á síðustu 75 árum sem ný apakattategund uppgötvast í Afríku.

Höfundar rannsóknarinnar telja að setja eigi tegundina á lista yfir tegundir í útrýmingarhættu vegna fámennis og vaxandi álags af völdum manna. Þeir benda á að að minnsta kosti 15 ný þorp hafi risið innan eða við búsvæði apakattarins á árunum 2015 til 2023.

„Haldi þessi þróun áfram má búast við verulegri fækkun tegundarinnar og tapi á búsvæðum hennar á næstu áratugum,“ segir í rannsókninni.

Apakötturinn er sagður vera hljóðlátur og dulur og aðeins fáir íbúar á svæðinu þekkja hann. Í rannsókninni kemur fram að í aðeins átta af 52 samfélögum við útbreiðslusvæði tegundarinnar hafi íbúar getað lýst henni nákvæmlega.

Balanga-fólkið vestan Lomami-árinnar kallar apaköttinn Likweli, en Mituku-fólkið nefnir hann kasaba nkoni, sem þýðir „sá sem hristir greinarnar“.

Rannsakendur segja að apakötturinn eigi samskipti með djúpum öskrum og tókst þeim að festa sex slík köll á myndband við rannsóknir sínar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum
Heimur

Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum

Gervigreindin talin hafa hjálpað hernum á Gaza og í Líbanon.
Gauti sakar Konráð um að afvegaleiða þjóðina
Innlent

Gauti sakar Konráð um að afvegaleiða þjóðina

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar
Heimur

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum
Myndband
Fólk

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum

Hér verður besta veðrið um verslunarmannahelgina
Landið

Hér verður besta veðrið um verslunarmannahelgina

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi
Heimur

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi

Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Paul Watson að hætta við aðgerðir
Innlent

Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Paul Watson að hætta við aðgerðir

Krían á Vatnsleysuströnd í mikilli hættu
Landið

Krían á Vatnsleysuströnd í mikilli hættu

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum
Heimur

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum

Fjórir sjálfboðaliðar, fjögur lönd og ógleymanlegar minningar á Íslandi
Myndir
Innlent

Fjórir sjálfboðaliðar, fjögur lönd og ógleymanlegar minningar á Íslandi

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs
Heimur

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs

Lýsir einmanaleika ungs fólks
Heimur

Lýsir einmanaleika ungs fólks

Oprah Winfrey lokar elítuskóla sínum í Suður-Afríku
Heimur

Oprah Winfrey lokar elítuskóla sínum í Suður-Afríku

Heimur

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó
Heimur

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó

Einkennist af appelsínugulum vörum og ljósum blettum í kringum munninn.
Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs
Heimur

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs

Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum
Heimur

Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar
Heimur

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi
Heimur

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum
Heimur

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum

Loka auglýsingu