1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

6
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

7
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

10
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Til baka

Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook

„Þetta er ótrúlegur harmleikur. Og meirihluti þeirra sem bregðast við hlær, flissar.“

Pálmi Gestsson
Pálmi GestssonPálmi furðar sig á hegðun fólks
Mynd: Borgarleikhúsið

Leikarinn Pálmi Gestsson gagnrýnir harðlega þá sem bregðast við alvarlegum færslum á samfélagsmiðlum með hláturkörlum. Í nýrri Facebook-færslu segist hann eiga erfitt með að skilja hvers vegna fólk noti slíkt viðbragð við fréttum af hörmungum á borð við mannskæða gróðurelda.

Pálmi segir að hann hafi undanfarið velt þessum svokölluðu „flissurum“ fyrir sér.

„Þetta er ótrúlegur harmleikur. Og meirihluti þeirra sem bregðast við hlær, flissar. Það er háttur flissarana að þeir hafa ekkert að segja, koma ekki fram með neina skoðun, bara flisskall,“ skrifar hann.

Hann segir að sömu einstaklingarnir birtist gjarnan þegar hann setji fram skoðanir á Facebook og bregðist við með hláturkörlum þótt efnið sé ekki fyndið.

Til að kanna viðbrögðin segist Pálmi hafa gert litla tilraun. Hann fór inn á síður nokkurra þeirra sem notuðu hláturviðbrögð við færslum hans og setti sjálfur hláturkarl við færslur þeirra.

„Ég hef grun um að þeim hafi ekki fundist það fyndið og lái þeim hver sem vill,“ skrifar hann.

Pálmi segir að vissulega sé ekkert athugavert við að fólk sé hláturmilt, en hann hafi grun um að hláturviðbrögðin séu oft notuð til að gera lítið úr bæði umræðuefninu og þeim sem tjá sig.

Sem dæmi nefnir hann umræðuna um loftslagsbreytingar. Þar segir hann að þegar virtir vísindamenn leggi fram niðurstöður sínar bregðist sumir við með hláturkörlum í stað þess að færa rök fyrir máli sínu. Pálmi vísar þar í frétt á RÚV þar sem íslenskur vísindamaður segir loftslagsbreytingar helstu orsök vaxandi gróðurelda í heiminum.

„Þarna kemur sprenglærður, virtur og viðurkenndur vísindamaður með djúpstæða þekkingu á málefninu og segir okkur hvað er að gerast og þá koma Pétur og Páll og fullt af alls konar kjánum sem enginn veit deili á og hvað gera þeir? Jú, setja hláturkall og flissa eins og vísindamaðurinn sé hálfviti og þeir sjálfir hafi miklu meiri þekkingu á því sem er að gerast. Ótrúlegt alveg.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kötturinn Sigurlaug lét níu lífin reyna á sig
Innlent

Kötturinn Sigurlaug lét níu lífin reyna á sig

Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

„Það kom þarna í ljós að ég myndi ekki hafa afgerandi hæfileika á þessu sviði“
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

„Við erum ekki öðruvísi fólk“
Fólk

„Við erum ekki öðruvísi fólk“

Einstök paradís úti á landi komin á sölu
Myndir
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

Loka auglýsingu