1
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

2
Minning

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá

3
Fólk

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

4
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

5
Fólk

Jón Þór fær starf hjá Samherja

6
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

7
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

8
Innlent

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild

9
Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

10
Innlent

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029

Til baka

Sopranos leikarinn Vincent Pastore látinn

„Fyrir umheiminn verður hann ávallt hinn ógleymanlegi „Big Pussy“, en fyrir okkur sem þekktum hann var hann svo miklu meira.“

Vincent Pastore
Vincent PastorePastore var áttræður er hann lést
Mynd: THEO WARGO / GETTY IMAGES VIA AFP

Bandaríski leikarinn Vincent Pastore, sem var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem mafíósinn Salvatore „Big Pussy“ Bonpensiero í HBO-þáttunum The Sopranos, er látinn, 80 ára að aldri.

Umboðsmenn hans, Robert Attermann og Bob McGowan, staðfestu andlátið við E! News. Ekki liggur enn fyrir dánarorsök en Pastore fannst látinn á heimili sínu í Bronx í New York. Talið er að hann hafi látist 31. júlí eða 1. ágúst.

„Ég hafði þann heiður að vera umboðsmaður Vinny í meira en 30 ár, löngu áður en The Sopranos gerði hann að landsþekktu nafni,“ sagði Attermann í yfirlýsingu.

„Fyrir umheiminn verður hann ávallt hinn ógleymanlegi „Big Pussy“, en fyrir okkur sem þekktum hann var hann svo miklu meira.“

Attermann lýsti Pastore sem einum hlýjasta og örlátasta manni sem hann hefði kynnst og sagði hann ávallt hafa tekið sér tíma til að hitta aðdáendur, skrifa eiginhandaráritanir og stilla sér upp fyrir myndir.

Bob McGowan sagði tíðindin vera „áfall“ og kvaðst afar sorgmæddur vegna andlátsins.

Á nærri fjögurra áratuga leikferli varð Pastore þekktur fyrir hlutverk ítalsk-amerískra mafíósa í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann lék meðal annars í myndunum Goodfellas (1990), Carlito's Way (1993) og Gotti (1996).

Það var þó árið 1999 sem hann sló í gegn í hlutverki „Big Pussy“ í The Sopranos. Persóna hans var náinn samstarfsmaður mafíuforingjans Tony Soprano, sem James Gandolfini lék, en síðar kom í ljós að hann hafði orðið uppljóstrari fyrir lögregluna. Örlög hans í lokaþætti annarrar þáttaraðar árið 2000 eru talin ein eftirminnilegasta sena í sögu þáttanna.

Pastore lætur eftir sig dótturina Renee Pastore, sem hann átti með fyrrverandi eiginkonu sinni, Nancy Berke.

Attermann sagði að lokum að Pastore hefði elskað leiklistina og lagt sig fram um að styðja unga leikara.

„Hann skilur eftir sig arfleifð sem nær langt út fyrir eftirminnileg hlutverk hans. Hans verður sárt saknað og hans verður ávallt minnst.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sýn og Síminn ekki í eina sæng
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild
Innlent

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí
Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

30 manns létust í ruslaslysi
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029
Innlent

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029

Jón Þór fær starf hjá Samherja
Fólk

Jón Þór fær starf hjá Samherja

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert
Viðtal
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá
Minning

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu
Myndir
Fólk

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

Ragnar Þór skipar nýja nefnd
Pólitík

Ragnar Þór skipar nýja nefnd

Ólafur Ragnar og heyrúllurnar
Slúður

Ólafur Ragnar og heyrúllurnar

Kristín skipuð í glænýtt embætti
Innlent

Kristín skipuð í glænýtt embætti

Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí
Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

Rannsakendur vinna nú að því að rekja ferðir konunnar síðustu dagana
Þrír látnir í kjölfar hermannaveikifaraldurs í Austurríki
Heimur

Þrír látnir í kjölfar hermannaveikifaraldurs í Austurríki

30 manns létust í ruslaslysi
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

Tugir flóttamanna sigldu upp að spænskri baðströnd
Heimur

Tugir flóttamanna sigldu upp að spænskri baðströnd

Átta létust þegar flugvél fórst í Bandaríkjunum
Heimur

Átta létust þegar flugvél fórst í Bandaríkjunum

Loka auglýsingu