Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Þrjú systkini náðu afburðaárangri í prófum í skugga þjóðarmorðsins á Gaza

„Þetta var mjög erfitt ár“

Þrjú systkini náðu afburðaárangri í prófum í skugga þjóðarmorðsins á Gaza
Musa fjöl­skyldan Systk­inin náðu öll frammúr­skar­andi árangri Mynd: Al Jazeera

Þegar nið­ur­stöður loka­prófa palest­ínskra fram­halds­skóla­nema, svo­kall­aðra Tawjihi-prófa, voru birtar 24. júlí varð mikil gleði á heim­ili Musa-fjöl­skyld­unnar í Khan Younis á suð­ur­hluta Gaza.

Systk­inin Sama, Abdullah og Nada Musa stóð­ust öll prófin með glæsi­brag þrátt fyrir erf­iðar aðstæður sem stríðið hefur skapað. Sama hlaut 97,5 pró­sent, Abdullah 94,6 pró­sent og Nada 94,4 pró­sent.

„Guði sé lof fyrir allt. Ég bjóst við enn hærri ein­kunn, en aðstæð­urnar réðu úrslitum um árang­ur­inn sem við náðum,“ sagði Sama í sam­tali við Al Jazeera.

Hún sagði að námið hefði reynt mjög á and­lega.

„Sálrænt hafði maður oft ekki orku til að halda áfram. En ég ákvað að sigr­ast á öllum hindr­unum svo ég gæti glatt fjöl­skyld­una mína og náð þeim árangri sem mig hafði dreymt um árum saman.“

Kennarar komu heim til systkinanna

Námið reynd­ist sér­stak­lega erfitt fyrir Abdullah og Nödu, sem bæði eru með lík­am­lega fötlun og gátu því ekki sótt einka­tíma. Fjöl­skyldan fékk þess í stað kenn­ara til að koma heim til þeirra.

Móðir þeirra, Hind Muhanna, segir fjöl­skyld­una hafa lagt sig alla fram í gegnum árin.

„Guði sé lof, við unnum mjög hart fyrir þau og í dag upp­skerum við árang­ur­inn. Erfiði okkar fór ekki til spillis,“ sagði hún.

Hún sagði að fjöl­skyldan hefði ávallt reynt að efla sjálfs­traust barn­anna.

„Við létum þau alltaf finna að þau væru betri en allir aðrir. Frá leik­skóla­aldri spurðu allir mig hvað væri leynd­ar­málið á bak við sjálfs­traust þeirra.“

Nada segir stuðn­ing for­eldra sinna hafa skipt sköpum.

„Guði sé lof, vegna for­eldra minna gat ég tek­ist á við allar hindr­anir. Þau studdu mig hvert skref á leið­inni og brugð­ust mér aldrei.“

Abdullah sagði árang­ur­inn end­ur­spegla sam­eig­in­legt átak fjöl­skyld­unnar.

„Þetta var mjög erfitt ár, fullt af flótta og erf­ið­leikum. En þrátt fyrir sárs­auk­ann náðum við mark­mið­unum sem við höfðum unnið að.“

Yfir þúsund nemendur létust áður en þeir gátu tekið prófin

Samkvæmt palest­ínska mennta­mála­ráð­herr­anum Amjad Barham tóku um 89 þús­und nem­endur á Vest­ur­bakk­anum, í Austur-Jer­úsalem og á Gaza Tawjihi-prófin í ár. Þá þreyttu um tvö þús­und palest­ínskir nem­endur prófin í 46 öðrum löndum.

Ráð­herr­ann sagði jafn­framt að meira en 1.100 nem­endur sem áttu að taka prófin í ár hefðu verið drepin af Ísra­els­her.

Þjóð­ar­morðið hefur einnig haft gríð­ar­leg áhrif á mennta­kerfið. Þúsundir heim­ila hafa eyði­lagst, skólar orðið fyrir árásum, vegir skemmst og erfitt hefur verið að koma náms­gögnum inn á Gaza.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar sögðu í nóv­em­ber að meira en 97 pró­sent skóla á Gaza hefðu skemmst eða verið eyði­lagðir á tveimur árum. Tæplega 92 pró­sent mennta­stofn­ana þyrftu umfangs­mikla end­ur­upp­bygg­ingu eða við­gerðir áður en hægt væri að hefja þar kennslu á ný.

Kennarar héldu áfram þrátt fyrir áföll

Kennarar á Gaza gegndu einnig lyk­il­hlut­verki í árangri nem­end­anna.

Stærð­fræði­kenn­ar­inn Hanaa al-Sayed kenndi Tawjihi-nem­endum í fræðslu­mið­stöð í Deir el-Balah þrátt fyrir erf­iðar aðstæður.

Hún segir að margir nem­endur hafi glímt við djúp sál­ræn áföll eftir að hafa misst ást­vini.

„Nem­end­urnir þurftu ekki aðeins ein­hvern til að útskýra náms­efnið. Þeir þurftu ein­hvern sem hlust­aði á þá og stæði með þeim,“ sagði hún.

„Ég kom fram við þá eins og þeir væru mín eigin börn og reyndi að styðja þá and­lega áður en ég kenndi þeim stærð­fræði.“

Fögnuður í skugga sorgar

Þótt margir nem­endur fögn­uðu góðum árangri í Tawjihi-próf­unum ein­kennd­ust nið­ur­stöður próf­anna einnig af sorg hjá fjöl­mörgum fjöl­skyldum á Gaza.

Ein þeirra er Tala Abu Sukkar frá Bureij-flótta­manna­búð­unum á mið­hluta Gaza. Hún missti móður sína aðeins tveggja ára gömul og á meðan stríðið stóð yfir lét­ust eldri bróðir hennar, faðir hennar, systir og fjögur systk­ina­börn. Í dag býr hún hjá frænda sínum, sem tók við umönnun hennar og studdi hana í gegnum prófin.

„Ég missti fólk sem var stór hluti af lífi mínu. Erfiðast var að halda áfram á minni braut á meðan ég bar allan þennan sárs­auka innra með mér. En ég reyndi að vera sterk og gef­ast ekki upp,“ sagði Tala í sam­tali við Al Jazeera.

Hún segir lokaár sitt í skóla hafa verið jafn mikil sál­ræn áskorun og náms­leg.

„Tawjihi-tíma­bilið var eitt það erf­ið­asta sem ég hef gengið í gegnum. Ég var að læra á sama tíma og ég reyndi að vinna úr sorg­inni, en ég hafði það mark­mið að ná árangri og gera fjöl­skyldu mína stolta.“

Tala hlaut 86 pró­senta með­al­ein­kunn. Hún segir augna­blikið þegar nið­ur­stöð­urnar birt­ust hafa verið bæði gleði­legt og sárt.

„Ég var glöð að hafa náð árangri en ég óskaði þess að faðir minn og aðrir fjöl­skyldu­með­limir hefðu verið við hlið mér til að deila þess­ari stund.“

Hún segir frænda sinn hafa verið helsta stoð sína eftir miss­inn.

„Frændi minn hefur stutt mig eftir að ég missti fjöl­skyld­una mína og nær­vera hans hjálp­aði mér að halda áfram og gef­ast ekki upp.“

Sögur nem­enda á Gaza í ár sýna, að sögn Al Jazeera, stað­festu kyn­slóðar sem heldur áfram að sækja menntun þrátt fyrir stríð, missi ást­vina og stöðugar hörm­ungar. Með stuðn­ingi fjöl­skyldna og kenn­ara hafi nem­endur haldið áfram að vinna að fram­tíð sinni við afar erf­iðar aðstæður.

Þess má geta að palest­ínska þjóðin er ein mest mennt­aða þjóð í heimi en læsi þjóð­ar­innar er með því hæsta í heimi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum

Ekki hefur verið greint frá nafni stúlkunnar eða þjóðerni hennar.
Heimur

Dæmd í fang­elsi fyrir að van­rækja börn og fela þau fyrir for­eldrum

Pólitík

Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Heimur

Heimur

Einmana kart­öflu­flaga olli upp­námi á net­inu

Í óopnuðum poka af Wavy Lay’s kartöfluflögum var ein heil flaga
Heimur

Lög­reglan þver­tekur fyrir að hafa teiknað typpi vilj­andi

Heimur

Lög­reglu­stjóri í Lundúnum úti­lokar ekki að fleiri konur stígi fram vegna Russell Brand

Heimur

Langþráð heim­koma páfa til Perú í skugga veik­inda

Heimur

Cohen-bræður snúa aftur eftir átta ára aðskilnað

Heimur

Ítalskur kokkur rek­inn eftir að hann neit­aði að setja ananas á pítsu