Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

„Þarna lauk viðskiptasambandi mínu við Krónuna“

Nafna­breyting hjá Krónunni sögð fela í sér pólitísk skilaboð

Jávaxtabar Krónunnar
Jávaxta­bar Krón­unnar Krónan svarar gagn­rýni: „Verslun en ekki kosn­inga­skrif­stofa“ Mynd: Krónan

JÁvaxtabar Krónunnar vekur mikla athygli. Nafna­breytingin og ný hönnun á ávaxta­markaðnum vöktu upp umræðu á samfélags­miðlum þar sem sumir viðskipta­vinir tengdu orðið „JÁ“ við umræðuna um Evrópu­sambandið. Krónan breytti nafni ávaxta­markaðarins í JÁvaxta­barinn og segir breytinguna eingöngu snúast um að hvetja fólk til að segja „já“ við ávöxtum á hverjum degi.

Ekki eru allir jafn sáttir við þessar breytingar og segir Hanna Þurý Ólafs­dóttir inni í hópnum Ísland, þvert á flokka að hún ætli sér ekki að eiga aftur viðskipti við Krónuna.

„Þarna lauk viðskiptasambandi mínu við Krónuna.

Ég á stóra fjöl­skyldu og við höfum verslað nær allar okkar matvörur í Krónunni í mörg ár. Þangað til núna.

Verslun sem þjónar fólki með ólíkar skoðanir ætti að halda sig utan pólitískra deilna.

Fyrirtæki hafa vissulega rétt á að tjá sig. En viðskipta­vinir hafa líka rétt á að velja hvert þeir fara með peningana sína.

Ég kýs að versla þar sem allir viðskipta­vinir eru velkomnir, óháð pólitískum skoðunum. Þess vegna verða mín viðskipti færð annað.

Ef fleiri eru ósáttir við að matvöru­verslun sé notuð sem vettvangur fyrir pólitísk skilaboð, þá er einfaldasta leiðin að fara annaði. Fyrirtæki hlusta þegar viðskipta­vinir kjósa með veskinu.“

Lína Rut Wilberg tekur í sama streng og segir þetta sorglegt.

„Ótrúlega sorglegt, hef verslað mikið þarna, geri það ekki fyrr en þetta skilti verður fjarlægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum