1
Peningar

Icelandair skerðir þjónustu við farþega

2
Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur

3
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

4
Fólk

Níu matvæli sem aldrei ætti að gefa köttum

5
Fólk

Einmanaleg glíma þeirra sem rjúfa fjölskyldubönd

6
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

7
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

8
Innlent

Dæmdir fyrir að stela milljónaskartgripum í Hafnarfirði

9
Fólk

Draumaraðhús í Garðabæ sett á sölu

10
Innlent

Sækir gegn íslenska ríkinu en varar við ESB

Til baka

Fyrrum bæjarstjóri Bolungarvíkur segir útsýnispallinn öruggan

„Það er hinsvegar skiljanlegt að fólki finnist það óþægilegt að sjá þetta svona“

útsýnispall
ÚtsýnispallurinnJón Páll segir pallinn öruggan
Mynd: Facebook

Mannlíf sagði frá Facebook-færslu fyrrverandi ritstjórans og núverandi leiðsögumannsins Reynis Traustasonar, þar sem hann bendir á sprungið og úr sér gengið öryggisgler á útsýnispallinum á Bolafjalli við Bolungarvík. Sagði hann ferðamenn furða sig á ástandinu á pallinum og benti á að um 670 metra fall sé frá pallinum. Fyrrverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur svaraði færslu Reynis í athugasemdum.

Jón Páll Hreinsson segir í athugasemd við færslu Reynis að öryggisglerið sé öruggt, þrátt fyrir útlitið og bendir á að ekki kosti að fara á pallinn en það kosti að nota bílastæðið. Segir hann það ósanngjarnt ef íbúar Bolungarvíkur ættu að standa einir undir kostnaðinum á viðhaldi pallsins.

„Þessi gler (sérstök öryggisgler) eru fullkomlega örugg, þrátt fyrir að líta svona út. Hönnun pallsins, smíði hans og uppsetning fylgdi ströngustu öryggiskröfum og hann hefur staðist allar öryggisúttektir síðan. Það er hinsvegar skiljanlegt að fólki finnist það óþægilegt að sjá þetta svona, þótt það sé ekki hættulegt. Þess vegna er girðingin þarna. Svo kostar ekki á pallinn. Það kostar að nota bílastæðið. Mjög hóflegt gjald til að standa undir fjárfestingu við bílastæðið, enda væri það ósanngjarnt að ætlast til að íbúar Bolungarvíkur stæðu einir undir þeim kostnaði.“

Reynir svaraði bæjarstjóranum fyrrverandi um hæl og sagði þetta ekki í lagi.

Því svaraði Jón Páll:

„Það getur vel verið. Ég var bara að benda á að hann væri ekki hættulegur og það kostaði ekki inná hann. En með því að fleiri góðir leiðsögumenn eins og þú venji komur sýnar á pallinn, þá verður auðveldara fyrir sveitarfélagið að bæta upplifun gesta.“

Athugasemdir bæjarstjórans fyrrverandi sköpuðu nokkra umræðu en Árni Tryggvason spyr hann hvers vegna það væri ósanngjarn ef Bolvíkingar kosti framkvæmdirnar.

„Hvers vegna er það ósanngjarnt að íbúar kosti framkvæmdir í sínu sveitarfélagi?

Sérstaklega ef frumkvæðið er þeirra.“

Steinar Örn Stefánsson spyr Jón Pál hvort ríkið hafi ekki fjármagnað meginhluta verkefnisins.

„Var ekki meginhluti verkefnisins þar með talið bílastæðið fjármagnað með styrk frá ríkinu/framkvæmdasjóði ferðamannastaða?“

Þegar þetta er ritað hefur Jón Páll ekki svarað þessum spurningum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun henna
„Okkur þykir það mjög leitt“
Innlent

„Okkur þykir það mjög leitt“

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt
Innlent

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans
Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans

Limminnsti maður heims fer í aðgerð
Heimur

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“
Peningar

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum
Heimur

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál
Innlent

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra
Peningar

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Myndband
Innlent

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda
Heimur

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu
Myndir
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur
Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur

Í nýju starfi hyggst Bergey leggja áherslu á gott samstarf við starfsfólk
150 sentímetra háir stilkar á Vestfjörðum verða að lúxuslíkjör
Myndband
Landið

150 sentímetra háir stilkar á Vestfjörðum verða að lúxuslíkjör

„Drengurinn fannst grátandi á planinu við ána“
Landið

„Drengurinn fannst grátandi á planinu við ána“

Sólmyrkvi á Íslandi: Við erum klár!
Landið

Sólmyrkvi á Íslandi: Við erum klár!

Neyðarsímtöl komust ekki til skila eftir alvarlegt slys
Landið

Neyðarsímtöl komust ekki til skila eftir alvarlegt slys

Magnað sjónarspil á svörtu söndunum
Myndband
Landið

Magnað sjónarspil á svörtu söndunum

Loka auglýsingu