1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

10
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Til baka

Baráttunni haldið áfram

Leyfin verði kærð

Sjókvíaeldi_landvernd_vefur
Sjókvíaeldi leyft í Seyðisfirði á grundvelli eldri laga
Mynd: Landvernd

Matvælastofnun (MAST) og Umhverfis- og orkustofnun hafa gefið út rekstrar- og starfsleyfi til handa eldisfyrirtækinu Kaldvík fyrir 10 þúsund tonna sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Ákvörðunin hefur vakið hörð viðbrögð, en hún var kynnt fyrir helgi og virðist koma þvert á loforð stjórnmálaflokka fyrir síðustu kosningar og skýran vilja heimamanna.

„Í aðdraganda kosninga töluðu stjórnarflokkarnir um mikilvægi þess að vernda Seyðisfjörð og lögðu áherslu á að almannahagsmunir ættu að vega þyngra en sérhagsmunir. Nú gefst þeim tækifæri til að sýna hvað þau orð þýða í framkvæmd."

Skrifar Laura Sólveig Lefort Scheefer- Forseti Ungir umhverfissinnar á Vísi.

Mikill meirihluti íbúa á Seyðisfirði hefur lýst yfir andstöðu við áformin og söfnuðust um tólf þúsund undirskriftir gegn sjókvíeldinu á landsvísu. Þá lýsti heimastjórn Múlaþings því yfir að útgáfa leyfisins hefði komið henni í opna skjöldu, enda hafði mikið verið rætt um boðað frumvarp um sjókvíaeldi á Alþingi sem átti að taka á þessum málum.

Stofnanir bundnar af lögum ekki loforðum

Að baki útgáfunni liggja flóknar stjórnsýslureglur. Stofnanir á borð við MAST og Umhverfis- og orkustofnun starfa samkvæmt gildandi lögum en ekki pólitískum yfirlýsingum eða kosningaloforðum. Þar sem umsókn Kaldvíkur (áður Fiskeldis Austfjarða) uppfyllti öll núverandi lagaskilyrði, s.s. burðarþolsmat og áhættumat, bar stofnununum lagaleg skylda til að gefa leyfin út.

Tafir á nýrri og strangari löggjöf um lagareldi á Alþingi urðu til þess að eldra og rýmra lagaverkið gilti þegar ferlið kláraðist. Stjórnmálamenn stýra löggjöfinni en hafa ekki heimild til að hlutast til um einstaka stjórnsýsluákvarðanir stofnana án lagastoðar.

Baráttunni haldið áfram

Útgáfa leyfisins þýðir þó ekki að málinu sé endanlega lokið. Íbúar og hagsmunaaðilar búa yfir lagalegum úrræðum til að bregðast við:

  • Kærur til úrskurðarnefndar: Leyfi stofnana má kæra til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar. Íbúasamtökin VÁ – félag um vernd fjarðar hafa þegar lýst því yfir að leyfin verði kærð.
  • Sveitarfélagið með neitunarvald: Eldisfyrirtækið þarf enn byggingarleyfi frá Múlaþingi fyrir mannvirkjum á landi, sem veitir heimamönnum áframhaldandi tækifæri til að láta kné fylgja máli.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu
Menning

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann
Myndband
Heimur

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann

Klappstýrur kæra My Chemical Romance
Heimur

Klappstýrur kæra My Chemical Romance

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur
Menning

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur

Björgvin Birgisson er fallinn frá
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna
Heimur

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Loka auglýsingu