1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

4
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

8
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

9
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

10
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

Til baka

Raddir unga fólksins gegn ofbeldi

Ofbeldi þrífst í þögninni

Ungmennaþing 2026
Sjónarmið ungmenna í forgrunni á nýju ungmennaþingi á Norðurlandi vestra
Mynd: Barnaheill

Á morgun, fimmtudaginn 17. september kl. 09:30, verður haldið fjölmennt ungmennaþing í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Öllum nemendum í 10. bekk frá öllum sex grunnskólum á svæðinu er boðið að taka þátt.

Sjónum verður beint að mjög mikilvægu og alvarlegu málefni: ofbeldi í nánum samböndum unglinga.

Þingið er samstarfsverkefni Barnaheilla, SSNV, Farsældarráðs Norðurlands vestra, Öruggara Norðurland vestra og Forvarnaráætlunar Norðurlands vestra.

Verkefnið er byggt á vinnustofum sem Barnaheill héldu víða um land á vormánuðum en hefur verið sérsniðið að aðstæðum á svæðinu.

Góður stuðningur er við bakið á framtakinu en þingið er styrkt af Kaupfélagi Skagfirðinga, FISK seafood, Steinull, Borealis datacenter, Byggðarstofnun, N1 á Sauðárkróki og Kjörbúðinni á Blönduósi.

Ofbeldi þrífst í þögninni

Fyrirliggjandi gögn sýna að kynferðisofbeldi gegn ungu fólki og meðal ungmenna er alvarlegt samfélagslegt vandamál. Ljóst er að þörf er á aukinni umræðu og markvissri fræðslu um mörk, samþykki, virðingu og heilbrigð samskipti.

Með beinni þátttöku unga fólksins á svæðinu á að fá innsýn í upplifun þeirra og viðhorf. Markmiðið er meðal annars að kanna:

  • Hvort ungmennin þekki einkenni óheilbrigðra sambanda og ofbeldis.
  • Hvort þau viti hvert skuli leita eftir aðstoð.
  • Hvaða mögulegu lausnir þau sjá sjálf til að minnka slíkt ofbeldi.

Niðurstöðurnar nýttar í forvarnarstarf

Þátttaka í ungmennaþingi veitir dýrmætt tækifæri fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og væntingar. Raddir þeirra eru lykilþáttur í því að móta fræðslu og forvarnir sem raunverulega ná til ungs fólks og mæta þörfum þess.

Að þinginu loknu munu Barnaheill taka saman upplýsingar og niðurstöður. Farsældarráðið, Öruggara Norðurland vestra og ForNor munu í kjölfarið nýta þá vinnu til að byggja upp betra forvarnarstarf og móta viðbrögð við ofbeldi í lífi ungmenna á Norðurlandi vestra.

Áhugasamir geta kynnt sér niðurstöður frá sambærilegum þingum sem haldin voru í öðrum landshlutum fyrri hluta árs í skýrslu Barnaheilla.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Samkvæmt mati Náttúrufræðistofnunar hefur svæðið hátt verndargildi
Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Loka auglýsingu