Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Gummi Emil ósáttur við múslima, innflytjendur og „vinstri libba“

Full­yrðir að múslimar beri „enga virð­ingu fyrir vest­rænum konum“

Gummi Emil ósáttur við múslima, innflytjendur og „vinstri libba“
Guð­mundur Emil Jóhanns­son Starfar sem einka­þjálf­ari. Mynd: Guðmundur Emil/Facebook

Einka­þjálf­ar­inn og áhrifa­valdur Guð­mundur Emil Jóhanns­son, oft nefndur Gummi Emil, hefur vakið athygli með færslu á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann fjallar meðal ann­ars um inn­flytj­enda­mál, múslima, verð­bólgu og íslensk stjórn­mál.

Guð­mundur deildi þar skjá­skoti af fyrri færslu sinni sem hann segir hafa fengið óvenju­mikil við­brögð. Hann segir við­brögðin til marks um að við­horf fólks séu að breyt­ast. Rétt er þó að taka fram að Guð­mundur hefur eytt færsl­unni af sam­fé­lags­miðlum en hún var til umræðu í Facebook-hópum Afhjúpum kven­fyr­ir­litn­ingu, ras­isma og almennt hatur á sam­fé­lags­miðlum.

„Fólk er að vakna á Íslandi en það eru enn margir steinsof­andi lif­andi í afneitun. Það þarf meiri­háttar breyt­ingu,“ skrifar Guð­mundur og full­yrðir jafn­framt að múslimar beri „enga virð­ingu fyrir vest­rænum konum“.

Í færsl­unni sem Guð­mundur deilir gagn­rýnir hann meðal ann­ars hversu kostn­að­ar­samt sé að eign­ast börn á Íslandi. Hann tengir þá umræðu við inn­flytj­enda­mál og heldur því fram að útlend­ingar eign­ist mörg börn og fái ríf­legar bætur og styrki.

Guð­mundur beinir einnig spjótum sínum að stjórn­mála­mönnum og seg­ist telja að engan stjórn­mála­mann finna sem sé „nógu sterkur“ til að ná tökum á verð­bólg­unni. Þá gagn­rýnir hann fólk sem hann skil­greinir sem vinstri­s­innað og frjáls­lynt og sakar það meðal ann­ars um að „hata sitt eigið land og sitt fólk“. Vísar hann sér­stak­lega í þennan hóp sem „vinstri libba“.

Guð­mundur hefur áður vakið athygli í íslenskri fjöl­miðlaum­fjöllun vegna ummæla sinna og atvika í einka­lífi. Hann hefur meðal ann­ars sagt frá því að hafa verið kall­aður í skýrslu­töku hjá lög­reglu eftir að hann birti mynd af sér með tvær óhlaðnar veiði­byssur.

Hann hefur einnig gert athuga­semdir við úrslit Íslands­móts í fit­ness fyrra á árinu og haldið því fram að hann hafi verið rændur sigrinum í keppn­inni.

Þá vakti mál Guð­mundar tals­verða athygli árið 2024 þegar hann fannst nak­inn við Suð­ur­lands­veg. Guð­mundur greindi sjálfur frá því í kjöl­farið að hann hefði neytt ofskynj­un­ar­sveppa fyrir atvikið.

Nýjasta færsla hans hefur nú bæst við þær yfir­lýs­ingar Guð­mundar sem vakið hafa athygli á sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Maðurinn vísaði til sjálfsvígshættu í máli sínu gegn fjölmiðlunum.
Pólitík

Anna María ótt­ast að höggvið verði of nærri kjarna sam­fé­lags­ins

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sigurjón segir bank­ana reka okur­stefnu og „éta útsæðið“

Heimur

Trump segir Banda­ríkin hætta fjár­hags­að­stoð við Ísrael

Innlent

Innlent

Segir sölu Ljós­leið­ar­ans geta ógnað almanna­hags­munum

Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir varar við að einkavæðing mikilvægra fjarskiptainnviða geti veikt öryggi kerfisins og stöðu almennings.
Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Sendi­bíl­stjóri vann VÍS og fær tæpar 16 millj­ónir

Innlent

Jóhann dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir barn­a­níðs­efni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls