1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

3
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

4
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

5
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

6
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

7
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

8
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

9
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

10
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Til baka

Linda P var rúmliggjandi af liðagigt

„Erfitt að trúa því að þetta sé sama manneskjan“

Linda Pétursdóttir
Linda Péturs opnar sig um tímann þegar hún gat ekki sinnt sér sjálf
Mynd: Skjáskot

Linda Pétursdóttir deildi einlægri og hvetjandi sögu á samfélagsmiðlasíðu sinni. Þar lýsir hún því hvernig hún sigraðist á alvarlegum veikindum og hvernig hugarfarsbreyting og seigla hjálpuðu henni að snúa lífi sínu við.

Árið 2010 stóð Linda frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns þegar hún veiktist alvarlega af liðagigt. Á þeim tíma var hún einstæð móðir með fjögurra ára gamla dóttur og átti oft í erfiðleikum með að sinna einföldustu hlutum.

„Suma daga var ég svo verkjuð og bólgin að ég gat ekki sinnt sjálfri mér, hvað þá hjálpað henni með allt það sem ég var vön að gera fyrir hana daglega,“ segir Linda í færslunni og bætir við að dóttir hennar hafi stundum þurft að hjálpa henni að matast. „Þetta voru mjög erfiðir tímar. Ég fór reglulega í lyfjagjafir og vissi ekki hvernig framhaldið yrði.“

Linda Pétursdóttir
Mynd: Facebook/Linda Pétursdóttir
Linda Pétursdóttir
Mynd: Facebook/Linda Pétursdóttir

Seiglan tvíefldist við móðurhlutverkið

Linda útskýrir að sem einstæð móðir hafi hún fljótt áttað sig á því að hún yrði að gera allt sem í hennar valdi stóð til að breyta stöðunni. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á sjálfsvinnu og að hún sé gædd mikilli seiglu, en sú seigla hafi „tvíeflst“ þegar hún varð móðir. Hún hóf að rannsaka hvað hún gæti sjálf gert til að bæta heilsu sína, breytti hugsunarhætti sínum og tók upp hollara mataræði ásamt nýjum og heilbrigðum lífsstílsvenjum sem hún fylgir enn þann dag í dag.

„Með hverju árinu hefur áherslan á heilsuna aukist og í dag er það mér jafn mikilvægt að efla mig líkamlega og andlega,“ segir hún.

Erfitt að trúa breytingunni

Þegar Linda horfir til baka á myndir frá árinu 2010 segir hún erfitt að trúa því að um sömu manneskjuna sé að ræða, en sextán ár eru liðin síðan hún stóð í ströngustu baráttunni. Hún bendir á að fólk eigi það til að horfa á núverandi stöðu sína og nota hana sem mælikvarða á það hvað sé mögulegt í framtíðinni.

„En staðan þín í dag er ekki framtíðin þín. Tímabundnir erfiðleikar þurfa ekki að ákvarða hvað verður mögulegt fyrir þig síðar,“ skrifar Linda.

Linda notar eigin reynslu til að hvetja og styðja aðra sem ganga í gegnum erfiðleika. Hún boðar til ókeypis örnámskeiðs undir heitinu Nýir möguleikar, þar sem hún ætlar að aðstoða fólk við að sjá lengra en núverandi aðstæður og opna á ný tækifæri í lífinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu