Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Leigusalinn lenti í leigjanda úr helvíti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna var árás með slökkvitæki, nokkur mál vegna gruns um akstur undir áhrifum og innbrot á kaffihúsi.

Alvarlegasta málið laut að árás á mann sem staddur var í bifreið. Samkvæmt dagbók lögreglu réðst maður á annan mann í bifreið með slökkvitæki. Hann braut rúður í bifreiðinni með slökkvitækinu og kastaði því síðan í ökumanninn.

Árásar­maðurinn var hand­tekinn og vistaður í fanga­klefa vegna rann­sóknar málsins.

Fjórir ökumenn voru jafnframt hand­teknir vegna gruns um akstur undir áhrifum. Einn var grunaður um akstur undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna, tveir um ölvunar­akstur og einn um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra sem grunaður var um ölvunar­akstur hafði verið sviptur ökuréttindum. Ökumennirnir voru látnir lausir að lokinni blóð­sýnatöku.

Þá var tilkynnt um innbrot á kaffihúsi. Meintur innbrots­þjófur var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði og er málið í rannsókn. Einnig var tilkynnt um þjófnað í fata­verslun.

Lögregla var kölluð að íbúð þar sem leigusali átti í vandræðum með að koma leigutaka út, en samkvæmt dagbókinni hafði leigutakinn haft í hótunum við leigu­salann.

Á veitinga­stað þurfti einnig að kalla eftir aðstoð lögreglu vegna viðskipta­vinar sem hafði pantað sér mat og drykk en gat ekki greitt reikninginn. Málið var afgreitt með vettvangs­skýrslu.

Meðal annarra verkefna var útkall vegna innbrots­kerfis í fyrirtæki, en enginn fannst á vettvangi og engin merki voru um innbrot. Þá var lögreglu tilkynnt um tónlistar­hávaða og var húsráð­andi beðinn um að lækka í tónlistinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning