1
Innlent

MAST varar við neyslu á tveimur tegundum af þekktum fæðubótarefnum

2
Minning

Ingunn Björk Jónsdóttir er látin

3
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið mætti með gröfu og dró upp óvæntan feng

4
Fólk

Linda P var rúmliggjandi af liðagigt

5
Innlent

Stórundarlegur þjófnaður í Grafarvogi

6
Heimur

Fljúga áfram til Íslands þrátt fyrir greiðslustöðvun

7
Innlent

Leigusalinn lenti í leigjanda úr helvíti

8
Innlent

Íslendingar sigruðu nígerísk fyrirtæki í héraðsdómi

9
Innlent

Styður þú verkfall flugvirkja?

10
Innlent

Glæpamenn ætluðu að hittast á þekktum veitingastað í miðborginni

Til baka

Ísraelskur ráðherra segir herinn tilbúinn að „ljúka verkinu“ á Gaza

Í hernaðaraðgerðum Ísraels á Gaza síðan þá hafa meira en 73.700 Palestínumenn látið lífið

Israel Katz varnarmálaráðherra Ísraels og Benjamin Netanyahu
Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael
Mynd: Menahem KAHANA / AFP

Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, segir aðeins tímaspursmál hvenær Ísrael hefji á ný umfangsmikinn hernað á Gaza. Hann segir ísraelska herinn reiðubúinn til að „ljúka verkinu“ gegn Hamas og hrinda í kjölfarið í framkvæmd áætlun um brottflutning Palestínumanna frá Gaza.

Katz lét ummælin falla á miðvikudag þegar hann svaraði gagnrýni frá öðrum frambjóðanda á hægri væng stjórnmálanna fyrir þingkosningarnar í Ísrael 27. október.

Varnarmálaráðherrann fullyrti að um 70 prósent Gaza hefðu þegar verið tæmd af íbúum sínum í hernaðaraðgerðum Ísraels frá árás Hamas á Ísrael 7. október 2023. Nær allir íbúar Gaza hafa þurft að yfirgefa heimili sín einhvern tíma frá upphafi stríðsins og stórir hlutar svæðisins eru í rúst.

Katz sagði vopnahléið, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í október 2025, hafa haft mikið gildi fyrir Ísrael. Það hefði meðal annars leitt til heimkomu þeirra gísla sem eftir voru og tryggt skuldbindingu Bandaríkjanna um afvopnun Hamas.

Hann sagðist hins vegar ekki telja að Hamas yrði afvopnað með þeim hætti sem gert hefði verið ráð fyrir.

„Við skiljum öll að þetta mun ekki gerast,“ sagði Katz og bætti við að ísraelski herinn væri tilbúinn, fengi hann fyrirmæli um það, að útrýma Hamas og „ljúka verkinu“ svo hægt yrði að hrinda svokallaðri fólksflutningaáætlun í framkvæmd.

Katz sagði fyrr í september að Ísrael væri reiðubúið að auðvelda brottför Palestínumanna frá Gaza og hélt því fram að meirihluti íbúanna vildi flytja þaðan. Bandaríski sendiherrann í Ísrael, Mike Huckabee, hefur hins vegar hafnað því að til standi að flytja íbúa Gaza á brott gegn vilja þeirra. Utanríkisráðherra Ísraels, Gideon Saar, sagði jafnframt 9. september að ríkisstjórnin hefði engin áform um að vísa Palestínumönnum frá Gaza.

Árás Hamas og annarra vígasamtaka 7. október 2023 kostaði 1.221 mann lífið samkvæmt samantekt AFP sem byggir á opinberum ísraelskum tölum. Þá voru 251 teknir í gíslingu.

Í hernaðaraðgerðum Ísraels á Gaza síðan þá hafa meira en 73.700 Palestínumenn látið lífið samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu á Gaza. Ráðuneytið greinir ekki á milli almennra borgara og vígamanna í heildartölum sínum. Þrátt fyrir vopnahléið hafa árásir haldið áfram og samkvæmt ráðuneytinu hafa 1.375 Palestínumenn verið drepnir frá því það tók gildi.

Hamas lýsti því yfir í lok júlí að samtökin væru reiðubúin til afvopnunar. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur hins vegar hafnað næsta áfanga samkomulagsins og sagt að ísraelskur herafli verði ekki kallaður frá Gaza fyrr en staðfest hafi verið að Hamas hafi látið öll vopn af hendi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Einn frægasti hundur heims dáinn
Heimur

Einn frægasti hundur heims dáinn

Náði 14 ára aldri
Gummi Emil ósáttur við múslima, innflytjendur og „vinstri libba“
Innlent

Gummi Emil ósáttur við múslima, innflytjendur og „vinstri libba“

Páfinn óttast að mannleg dómgreind víki fyrir gervigreind
Heimur

Páfinn óttast að mannleg dómgreind víki fyrir gervigreind

Raddir unga fólksins gegn ofbeldi
Landið

Raddir unga fólksins gegn ofbeldi

Maki vildi ríkisborgararétt en kvörtunin komst ekki lengra
Innlent

Maki vildi ríkisborgararétt en kvörtunin komst ekki lengra

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Loftklæðning hrundi ofan á farþega í skelfingarflugi
Myndband
Heimur

Loftklæðning hrundi ofan á farþega í skelfingarflugi

77 sóttu um en Brynhildur fékk hnossið
Fólk

77 sóttu um en Brynhildur fékk hnossið

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Pólitík

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

13 ára drengur lést eftir að hafa tekið þátt í hættulegu samfélagsmiðlaæði
Heimur

13 ára drengur lést eftir að hafa tekið þátt í hættulegu samfélagsmiðlaæði

Glæpamenn ætluðu að hittast á þekktum veitingastað í miðborginni
Innlent

Glæpamenn ætluðu að hittast á þekktum veitingastað í miðborginni

Ný stefna á að flýta fyrir nýsköpun á Íslandi
Innlent

Ný stefna á að flýta fyrir nýsköpun á Íslandi

Milljónir fluttar milli manna í skipulagðri brotastarfsemi
Innlent

Milljónir fluttar milli manna í skipulagðri brotastarfsemi

Heimur

Einn frægasti hundur heims dáinn
Heimur

Einn frægasti hundur heims dáinn

Náði 14 ára aldri
Fljúga áfram til Íslands þrátt fyrir greiðslustöðvun
Heimur

Fljúga áfram til Íslands þrátt fyrir greiðslustöðvun

Ísraelskur ráðherra segir herinn tilbúinn að „ljúka verkinu“ á Gaza
Heimur

Ísraelskur ráðherra segir herinn tilbúinn að „ljúka verkinu“ á Gaza

Páfinn óttast að mannleg dómgreind víki fyrir gervigreind
Heimur

Páfinn óttast að mannleg dómgreind víki fyrir gervigreind

Loftklæðning hrundi ofan á farþega í skelfingarflugi
Myndband
Heimur

Loftklæðning hrundi ofan á farþega í skelfingarflugi

13 ára drengur lést eftir að hafa tekið þátt í hættulegu samfélagsmiðlaæði
Heimur

13 ára drengur lést eftir að hafa tekið þátt í hættulegu samfélagsmiðlaæði

Loka auglýsingu