Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

„Karl Gauti er hins vegar ekki byssa sem skýtur nema henni sé miðað.“

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Össur Skarp­héð­ins­son Er fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: BHJ

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður, gagn­rýnir Karl Gauta Hjalta­son, þing­mann Mið­flokks­ins, harð­lega eftir að sá síð­ar­nefndi kall­aði eftir afsögn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra í ræðu­stól Alþingis í gær.

Karl Gauti lét ummælin falla undir dag­skrár­liðnum störf þings­ins. Sagði hann Þorgerði Katrínu hafa tekið for­ystu í Evr­ópu­málum rík­is­stjórn­ar­innar og sak­aði hana um að hafa gengið fram af offorsi. Þá hélt hann því fram að hún hefði „rýrt sig að áliti og trausti bæði í Brussel og Washington“.

„Hæstv. utan­rík­is­ráð­herra á ekk­ert erindi lengur í sínu emb­ætti og henni væri sæmst að segja sig frá því þegar í stað,“ sagði Karl Gauti.

Ummælin féllu í kjöl­far þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bandið. Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að rík­is­stjórnin muni virða nið­ur­stöðu atkvæða­greiðsl­unnar og ekki halda aðild­ar­við­ræðum áfram á þessu kjör­tíma­bili. Jafn­framt hefur hún sagt að umsókn Íslands verði ekki form­lega dregin til baka.

Össur ósáttur

Össur gerir að umtals­efni að Þor­gerður Katrín hafi ekki verið við­stödd þegar Karl Gauti flutti ræð­una og segir atlög­una hafa verið „ódrengi­lega og lít­il­mann­lega“.

„Það er fáheyrt ef ekki eins­dæmi að þing­menn veit­ist harka­lega og per­sónu­lega að öðrum þing­mönnum eða ráð­herra án þess að gera við­kom­andi við­vart svo koma megi vörnum við. Hvað þá ef sett er fram krafa um afsögn!“ skrifar Össur á Facebook.

Hann rifjar jafn­framt upp ummæli Þráins Ber­tels­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns, um dag­skrár­lið­inn störf þings­ins og vísar til þess að Þráinn hafi kallað lið­inn „hálf­tíma fyrir hálf­vita“.

Össur vísar einnig til ummæla Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­seta Alþingis, sem hann segir eitt sinn hafa notað orðin „gunga“ og „drusla“ um ráð­herra sem neit­aði að standa fyrir máli sínu.

„Hvaða orð má nota um þing­mann sem þorir ekki að standa and­spænis ráð­herra þegar hann heimtar höfuð hennar?“ spyr Össur.

Hann skorar jafn­framt á þing­menn Mið­flokks­ins að fylgja gagn­rýni Karls Gauta eftir með form­legri van­traust­s­til­lögu á utan­rík­is­ráð­herra.

„Karl Gauti er hins vegar ekki byssa sem skýtur nema henni sé miðað. Þingmenn Mið­flokks­ins hljóta því að fylgja eftir aðför sinni að Þorgerði Katrínu með því að leggja fram form­lega til­lögu um van­traust á utan­rík­is­ráð­herr­ann. Eða leggja þeir ekki í það?“

Össur lýkur færsl­unni á beittri spurn­ingu:

„Getur verið að þeir séu gungur sem þora bara að skjóta úr laun­sátri?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ