
Leó XIV páfi varaði á miðvikudag við þeirri þróun að ákvarðanir sem ættu að vera á ábyrgð manneskjunnar yrðu í auknum mæli faldar reikniritum og gervigreind.
Páfinn ræddi málið á vikulegum almennum áheyrendafundi sínum í Vatíkaninu þar sem þúsundir trúaðra komu saman á Péturstorginu.
Hann sagði tækniframfarir, útbreiðslu fjölmiðla og samfélagsmiðla og síaukna notkun gervigreindar skapa ný tækifæri með því að brjóta niður hindranir og minnka fjarlægðir milli fólks.
Þróuninni fylgdu þó einnig hættur. Samskipti fólks ættu á hættu að verða sífellt ópersónulegri og færast í auknum mæli yfir í stafrænan heim. Þá væri hætta á að fólk vandist því að fela reikniritum ákvarðanir sem samkvæmt páfa ættu eingöngu að heyra undir mannlega samvisku.
Leó sagði kristið samfélag geta lagt sitt af mörkum með því að stuðla að því að mannleg samskipti hefðu raunverulegt innihald og persónulega dýpt.
Umræða um mögulega áhættu gervigreindar hefur farið vaxandi samhliða hraðri þróun tækninnar. Þar hefur meðal annars verið rætt um öryggi, aukna sjálfvirkni og hvort fyrirtæki í greininni séu fær um að setja sér nægilega strangar reglur.
Leó XIV hefur áður lýst áhyggjum af áhrifum gervigreindar. Í fyrsta stóra stefnuskjali sínu, Magnifica Humanitas, sem birt var í maí, kallaði hann eftir því að gervigreind yrði „afvopnuð“ til að koma í veg fyrir að tæknin næði yfirráðum yfir mannkyninu.
Vatíkanið hefur jafnframt lagt aukna áherslu á alþjóðlegt regluverk um gervigreind þar sem mannleg reisn verði höfð að leiðarljósi.