1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

5
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

6
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

7
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

8
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

9
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

10
Innlent

Ráðist á leigubílstjóra

Til baka

Íslendingar sigruðu nígerísk fyrirtæki í héraðsdómi

Háar fjárhæðir voru undir

Borgarnes 2025 Wiki
BorgarnesHéraðsdómur Vesturlands er staðsettur þar
Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað Klumbu ehf. af kröfum tveggja nígerískra félaga sem námu samanlagt tæplega 39 milljónum króna. Málin tengdust viðskiptum með þurrkaðar fiskafurðir til Nígeríu. Báðir dómar voru kveðnir upp 14. september.

Í öðru málinu krafðist Imma Joe Global Resources Ltd. þess að Klumba greiddi félaginu 10.136.775 krónur auk dráttarvaxta og málskostnaðar. Krafan skiptist í 50 þúsund Bandaríkjadali vegna gallaðrar vörusendingar og 32.500 dali vegna meintrar bónusgreiðslu.

Klumba hafnaði kröfunum og benti meðal annars á að viðskiptin hefðu farið í gegnum íslenska félagið Svalþúfu ehf. Dómurinn taldi gögn málsins styðja að Svalþúfa hefði gegnt umfangsmiklu hlutverki í viðskiptunum og ekki þótti sannað að Imma Joe Global Resources ætti beina kröfu á Klumbu.

Klumba var því sýknuð af öllum kröfum félagsins og Imma Joe Global Resources gert að greiða eina milljón króna í málskostnað.

Í hinu málinu krafðist Rosebeth Obiesika & Co. 28.601.360 króna greiðslu frá Klumbu auk vaxta og málskostnaðar. Félagið taldi sig eiga 224.306 Bandaríkjadala kröfu vegna innborgana í tengslum við skreiðarviðskipti.

Stefnandi hélt því fram að Klumba hefði tekið við greiðslum án þess að afhenda umsamið magn afurða. Dómurinn taldi hins vegar ósannað að Klumba hefði beitt svikum eða blekkingum. Þá næði viðskiptayfirlit, sem krafan byggðist á, til margra viðskiptamanna og uppruni hluta greiðslnanna væri óljós.

Klumba var sýknuð að svo stöddu í málinu þar sem endanlegt uppgjör viðskipta hefði ekki farið fram. Rosebeth Obiesika & Co. var gert að greiða Klumbu 1,2 milljónir króna í málskostnað.

Samanlagt var því Klumba sýknuð af kröfum upp á 38,7 milljónir króna í málunum tveimur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

Loka auglýsingu