1
Peningar

Icelandair skerðir þjónustu við farþega

2
Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur

3
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

4
Fólk

Níu matvæli sem aldrei ætti að gefa köttum

5
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

6
Fólk

Einmanaleg glíma þeirra sem rjúfa fjölskyldubönd

7
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

8
Innlent

Dæmdir fyrir að stela milljónaskartgripum í Hafnarfirði

9
Fólk

Draumaraðhús í Garðabæ sett á sölu

10
Innlent

Sækir gegn íslenska ríkinu en varar við ESB

Til baka

Ólafur Haukur segir Bandaríkin ekki hafa lært af fyrri stríðum

„Togari með tíu dróna innanborðs gæti þurrkað herstöðina og flugvöllinn út á dagsstundu“

Donald Trump Bandaríkjaforseti
Donald TrumpÓlafur Haukur segir Trump vera orðinn örvæntingarfullan
Mynd: Shutterstock

Leikritaskáldið og rithöfundurinn Ólafur Haukur Símonarson segir að Bandaríkin hafi ítrekað sýnt að gríðarleg fjárfesting í hergögnum tryggi ekki sigur í stríði. Þetta kemur fram í Facebook-færslu þar sem hann fjallar um átök Bandaríkjanna og Írans.

Í færslunni bendir Ólafur Haukur á að Bandaríkin hafi varið „óskaplegu fé“ í framleiðslu hergagna og nefnir meðal annars flugmóðurskip og orrustuflugvélar sem dæmi um dýran hernaðarbúnað. Þrátt fyrir það telur hann að Bandaríkin hafi borið lægri hlut í flestum þeim átökum sem þau hafi tekið þátt í frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Hann nefnir Kóreustríðið, Víetnamstríðið og stríðið í Afganistan sem dæmi og segir nú blasa við svipuð staða í átökunum við Íran.

„Það sem lítur verst út er að hin rándýru herskip, trilljónaþoturnar og allt sprengiregnið virðist engan gæfumun gera í átökunum,“ skrifar hann og heldur því fram að Íranir hafi enn yfirráð yfir Hormússundi.

Ólafur Haukur gagnrýnir jafnframt Donald Trump Bandaríkjaforseta harðlega.

„Veslings Trump vakir allar nætur og póstar einhverja vitleysu út í loftið, greinilega örvæntingarfullur,“ skrifar hann og bætir við að forsetinn sé „illa upplýstur maður og skilji hvorki upp né niður í neinu“.

Að mati Ólafs Hauks hafi átökin sýnt að hernaður snúist ekki fyrst og fremst um verðmæti vopna.

„Hernaður snýst ekki um dýrmæti hergagnanna, heldur vitið í kollinum, að beita kænsku og því sem handbært er; heyja stríðið á sínum forsendum en ekki forsendum óvinarins,“ segir hann.

Hann segir jafnframt að Bandaríkjamenn hafi ekki lært af fyrri átökum og dregur þá ályktun að „enginn geti sigrað þjóð sem vill lifa á sínum eigin forsendum, hversu góðar, slæmar, illar og heimskulegar sem þær kunna að virðast.“

Í lok færslunnar beinir Ólafur Haukur sjónum að Íslandi. Hann segir Íslendinga þurfa að velta fyrir sér hversu viðkvæmar bandarískar herstöðvar geti verið fyrir ódýrum drónum og eldflaugum og nefnir varnarsvæðið á Miðnesheiði sem dæmi.

„Togari með tíu dróna innanborðs gæti þurrkað herstöðina og flugvöllinn út á dagsstundu,“ skrifar hann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Líkfundur við Austurbæjarskóla
Innlent

Líkfundur við Austurbæjarskóla

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á hinn látna
Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta

„Okkur þykir það mjög leitt“
Innlent

„Okkur þykir það mjög leitt“

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt
Innlent

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans
Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans

Limminnsti maður heims fer í aðgerð
Heimur

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“
Peningar

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum
Heimur

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál
Innlent

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra
Peningar

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Myndband
Innlent

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda
Heimur

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu
Myndir
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

Lætur Nei-sinna fá á baukinn í nýjum texta við sígilt lag
Pólitík

Lætur Nei-sinna fá á baukinn í nýjum texta við sígilt lag

Naumur meirihluti fyrir áframhaldandi aðildarviðræðrum við ESB
Pólitík

Naumur meirihluti fyrir áframhaldandi aðildarviðræðrum við ESB

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

Hvað ætlar þú að kjósa í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu?
Könnun
Pólitík

Hvað ætlar þú að kjósa í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu?

„Mikið er þetta innilega lágkúrulegt hjá Ólafi Ragnari“
Pólitík

„Mikið er þetta innilega lágkúrulegt hjá Ólafi Ragnari“

Loka auglýsingu