Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í

Húsið var reist árið 2015

Dýjagata 16
Dýjagata 16

Glæsilegt tæplega 400 fermetra einbýlishús við Dýjagötu 16 í Urriða­holti er komið á sölu. Ásett verð eignarinnar er 349 milljónir króna.

Húsið var reist árið 2015 og er 396,7 fermetrar að stærð. Það stendur á 1.594 fermetra lóð á áberandi stað við Urriða­vatn og nýtur óskerts útsýnis yfir vatnið og náttúruna í nágrenninu. Arkitekt hússins er Kári Eiríksson.

Eignin er sögð afar vönduð og eru meðal annars hnotu­innréttingar, náttúru­steinn frá Rein og gólfhiti um allt húsið. Mikil lofthæð og stórir gluggar setja svip sinn á eignina og í rúmgóðri stofu er stór innbyggður arinn.

Frá stofu eru rúmgóðar svalir sem snúa í suður og suðaustur og úr borðstofu er gengið út á svalir til suðvesturs. Á efri hæð hússins eru jafnframt þaksvalir með víðáttu­miklu útsýni.

Við húsið er 60 fermetra þrefaldur bílskúr auk sjálf­stæðrar auka­íbúðar. Þá vekur athygli að lóðinni fylgir byggingar­réttur fyrir allt að 880 fermetra hús, sem býður upp á frekari uppbyggingar­möguleika.

Dýjagata er neðarlega í Urriða­holti, við óbyggt svæði og Urriða­vatn. Urriða­holtsskóli er í göngufæri og stutt er í verslanir og þjónustu. Þá eru golf­klúbbarnir Oddur, GSE og GKG allir í innan við tíu mínútna aksturs­fjarlægð.

Seljandi tekur jafnframt fram að hann sé opinn fyrir því að taka aðrar fasteignir upp í kaup­verðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“