Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“

Tucker Carlson segist hafa verið sleginn eftir fund sinn með Bandaríkja­forseta.

Donald Trump og Tucker Carlson
Donald Trump og Tucker Carlson Myndin er ekki frá einka­fundi þeirra fyrr­ver­andi félaga Mynd: CHIP SOMODEVILLA / GETTY IMAGES VIA AFP

Fjölmiðla­maðurinn Tucker Carlson segir Donald Trump Bandaríkja­forseta hafa gert lítið úr afleiðingum stríðs við Íran á einka­fundi þeirra í Hvíta húsinu, aðeins nokkrum dögum áður en Banda­ríkin og Ísrael hófu árásir á Íran. Að sögn Carlsons á Trump að hafa sagt: „Við deyjum öll hvort sem er, þannig að það skiptir engu máli.“

Carlson greindi frá samtalinu í viðtali í Newsmakers-hlað­varpinu NPR sem birt var í gær. Hann segist hafa rætt við Trump að minnsta kosti tíu sinnum í febrúar, þar á meðal ítarlega um hættuna á því að stríð við Íran gæti raskað olíu- og gasflæði í Mið-Austur­löndum.

Á fundinum, sem fór fram á skrif­stofu forsetans, segist Carlson hafa sagt Trump að stríðið snerist ekki fyrst og fremst um kjarnorku­áætlun Írans. Trump hefði sjálfur sagt í júní árið áður að kjarnorku­geta Írans hefði verið eyðilögð, að sögn Carlsons.

Carlson sagði Trump að Ísrael væri að þrýsta á um stríð með það að markmiði að ná yfirráðum á svæðinu, veikja sex ríki við Persaflóa og ýta bandarískum herstöðvum út úr Mið-Austur­löndum.

„Ég sagði þetta við Trump, beint framan í hann, á forseta­skrif­stofunni nokkrum dögum áður en stríðið hófst. Og hann horfði á mig og sagði: „Já, þú hefur rétt fyrir þér. En þegar öllu er á botninn hvolft deyjum við öll hvort sem er, þannig að það skiptir engu máli,““ sagði Carlson.

Carlson sagðist hafa orðið sleginn yfir svari forsetans.

„Ég sagði við hann: En hvað með börnin okkar og barna­börnin okkar og landið okkar? Og hann sagði: „Ugh“,“ sagði Carlson og baðaði frá sér höndunum.

„Ég var sleginn yfir þessu vegna þess að þetta er níhilismi og það er það síðasta sem nokkur leiðtogi ætti að sýna. Það skiptir máli. Það skiptir máli hver lifir eða deyr,“ bætti hann við.

Carlson gagnrýnir Trump harðlega

Carlson var áður einn af áberandi stuðnings­mönnum Trumps og talaði fyrir hans hönd á lands­fundi Repúblikana­flokksins árið 2024. Hann hefur hins vegar snúist gegn forsetanum, meðal annars vegna stríðsins og segist nú telja að Trump eigi að víkja úr embætti.

Carlson hefur gagnrýnt stríðið allt frá upphafi og í apríl virtist hann jafnvel gefa í skyn í eigin þætti að Trump gæti verið andkristur, samkvæmt CNN.

Trump brást síðar við gagnrýni Carlsons á Truth Social og kallaði hann og aðra gagn­rýnendur „heimskingja“ sem vildu að Íran yrði með kjarnorku­vopn.

Þegar NPR leitaði viðbragða Hvíta hússins við frásögn Carlsons um einka­fundinn var ekki brugðist sérstak­lega við ummælunum „við deyjum öll hvort sem er“. Þess í stað sendi Hvíta húsið NPR fyrri færslu Trumps um Carlson.

„Kannski ætti hann að leita sér að góðum geðlækni!“ skrifaði Trump þar um fyrr­verandi stuðnings­mann sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs