1
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

2
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti

3
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

4
Innlent

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu

5
Fólk

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í

6
Landið

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

7
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

8
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

9
Minning

Baldur Sveinsson er látinn

10
Innlent

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls

Til baka

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Konan segist hafa komist í samband við lögmenn haustið 2024 eftir að hafa séð auglýsingu á Facebook

Jay-Z Beyonce
Jay-Z og Beyonce
Mynd: CHRIS GRAYTHEN / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Kona sem sakaði bandaríska rapparann Jay-Z um nauðgun hefur dregið ásakanir sínar til baka og segir þær rangar. Hún kveðst aldrei hafa hitt tónlistarmanninn og biðst afsökunar á þeim skaða sem ásakanirnar hafi valdið honum og fjölskyldu hans.

Konan höfðaði mál undir nafnleynd og hélt því fram að Jay-Z, sem heitir réttu nafni Shawn Carter, og Sean „Diddy“ Combs hefðu nauðgað henni þegar hún var 13 ára. Lögmaðurinn Tony Buzbee lagði málið upphaflega fram fyrir hennar hönd í desember 2024.

Í nýjum dómsgögnum, sem TMZ hefur undir höndum, segir konan að ekkert hæft sé í ásökunum hennar á hendur Carter. Hún tekur jafnframt fram að hún hafi ekki fengið neinar greiðslur eða aðrar fjárhagslegar bætur frá honum eða aðilum sem tengjast honum fyrir að draga ásakanirnar til baka.

Nýr lögmaður konunnar, James Blair Newman Jr., segir hana áfram halda því fram að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi en að hún hafi haft rangt fyrir sér þegar hún nafngreindi Carter sem geranda. Hann hafi hvorki nauðgað henni né beitt hana kynferðisofbeldi og þau hafi aldrei hist.

Konan segist hafa komist í samband við lögmenn haustið 2024 eftir að hafa séð auglýsingu á Facebook þar sem leitað var að fólki sem kynni að eiga kröfur vegna kynferðisofbeldis gegn Combs. Auglýsingin hafi vakið upp minningar hennar um meint ofbeldi þegar hún var 13 ára.

Jay-Z hefur frá upphafi alfarið hafnað ásökununum. Árið 2025 höfðaði hann mál gegn Buzbee, lögmannsstofu hans og konunni. Hann hefur nú fallið frá málarekstri gegn konunni en heldur áfram málsókn sinni gegn Buzbee.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

Svíi á sextugsaldri talinn bera ábyrgð á hvarfi eiginkonu billjarðamæringsins.
Ísraelska heimildarmyndin NAZA dreift ókeypis á netinu
Heimur

Ísraelska heimildarmyndin NAZA dreift ókeypis á netinu

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát
Heimur

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

Síðustu ferðir Noah litla raktar
Heimur

Síðustu ferðir Noah litla raktar

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum
Myndband
Heimur

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun
Heimur

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

Susan Sarandon meðal handtekinna við mótmæli gegn Netanyahu
Heimur

Susan Sarandon meðal handtekinna við mótmæli gegn Netanyahu

„Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað“
Innlent

„Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað“

Lögregla beitti táragasi við útburð aldraðrar konu í Madríd
Heimur

Lögregla beitti táragasi við útburð aldraðrar konu í Madríd

Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

Svíi á sextugsaldri talinn bera ábyrgð á hvarfi eiginkonu billjarðamæringsins.
Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum
Myndband
Heimur

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum

Ísraelska heimildarmyndin NAZA dreift ókeypis á netinu
Heimur

Ísraelska heimildarmyndin NAZA dreift ókeypis á netinu

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist
Heimur

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát
Heimur

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Síðustu ferðir Noah litla raktar
Heimur

Síðustu ferðir Noah litla raktar

Loka auglýsingu