
Breski hægri öfgamaðurinn Daniel Thomas neitaði sök fyrir dómi í dag eftir að hafa verið ákærður fyrir eignaspjöll vegna atviks á Ermarsundi fyrr í vikunni. Thomas er betur þekktur undir viðurnefninu Danny Tommo og hefur verið áberandi í mótmælum gegn innflytjendum í Bretlandi.
Saksóknarar halda því fram að Thomas, sem er 37 ára iðnaðarmaður, hafi skemmt uppblásinn bát með hnífi á meðan viðbragðsaðili var um borð. Thomas kom fyrir dómara og neitaði sök. Hann neitaði einnig sök vegna ákæru um að hafa ekki afhent lögreglu PIN-númer að síma sínum.
Thomas hefur um árabil verið bandamaður hægri öfgamannsins Tommy Robinson, sem heitir réttu nafni Stephen Yaxley-Lennon. Robinson var viðstaddur þinghaldið og sat í áhorfendastúku dómsalarins.
Dómari hafnaði beiðni Thomas um lausn gegn tryggingu og var hann úrskurðaður áfram í gæsluvarðhald fram að næstu dómsmeðferð, sem fer fram á þriðjudag.
Málið kemur upp á sama tíma og áfram ríkir mikil pólitísk spenna í Bretlandi vegna fjölda fólks sem reynir að komast yfir Ermarsund á smábátum frá Frakklandi.
Alls komu 781 manns til Bretlands með þessum hætti á miðvikudag, sem var mesti fjöldi á einum degi það sem af er árinu. Samtals höfðu þá 18.565 manns farið þessa leið á árinu.
Bresk stjórnvöld hafa árum saman reynt að stemma stigu við siglingunum. Verkamannaflokksstjórnin hefur lagt áherslu á aðgerðir gegn glæpasamtökum sem skipuleggja ferðirnar og aukið samstarf við nágrannaríki Bretlands.