Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

60% full­orð­inna í ofþyngd eða með offitu­vanda

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur
Alma D. Möller, heil­brigð­is­ráð­herra mælti fyrir tveimur nýjum lands­á­ætl­unum um offitu og sjald­gæfa sjúk­dóma Mynd: Heimildin/Golli

Alma D. Möller heil­brigð­is­ráð­herra mælti í gær fyrir tveimur umfangs­miklum þings­á­lykt­un­ar­til­lögum á Alþingi. Annars vegar er um að ræða aðgerða­á­ætlun til árs­ins 2030 sem ætlað er að spyrna við vax­andi offitu­vanda hér á landi. Hins vegar er ný lands­á­ætlun til árs­ins 2031 sem á að bæta grein­ingu, með­ferð og stuðn­ings­kerfi fyrir fólk með sjald­gæfa sjúk­dóma. Báðum til­lög­unum hefur nú verið vísað til umfjöll­unar hjá vel­ferð­ar­nefnd Alþingis.

Offita meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Tíðni offitu hefur farið hratt vax­andi á Íslandi á und­an­förnum árum líkt og ann­ars staðar í heim­inum, en áætlað er að árið 2030 muni um þrír millj­arðar manna glíma við ofþyngd á heims­vísu. Hér á landi mæld­ust 24% full­orð­inna og 7,5% barna með offitu­vanda árið 2025, og hafði hlut­fall full­orð­inna í þeim hópi auk­ist um ríf­lega 4,5% síðan árið 2015. Ef litið er til þeirra sem eru annað hvort í ofþyngd eða með offitu­vanda var hlut­fallið komið í 60% meðal full­orð­inna og 26,4% hjá börnum.

Meg­in­mark­mið nýrrar aðgerða­á­ætl­unar er að snúa þess­ari þróun við. Horft er til þess að efla for­varnir til að draga úr nýgengi offitu, sér­stak­lega meðal ungs fólks, og koma í veg fyrir alvar­legri þróun. Þá á að breyta nálgun heil­brigð­is­kerf­is­ins þannig að offita verði með­höndluð líkt og aðrir lang­vinnir sjúk­dómar. Það felur í sér form­lega grein­ingu og betra aðgengi að fjöl­breyttum, gagn­reyndum með­ferð­ar­úr­ræðum og end­ur­hæf­ingu. Samhliða verður lögð áhersla á að vinna gegn nei­kvæðum við­horfum og for­dómum í sam­fé­lag­inu.

Sjónum beint að sjaldgæfum sjúkdómum

Hin til­lagan lýtur að lands­á­ætlun um sjald­gæfa sjúk­dóma til árs­ins 2031. Sjald­gæfir sjúk­dómar eru skil­greindir sem sjúk­dómar sem herja á færri en fimm af hverjum 10.000 ein­stak­lingum. Um 7.000 slíkir sjúk­dómar eru þekktir í heim­inum og eru flestir þeirra ætt­aðir úr erfða­fræði­legum orsökum. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um hversu margir á Íslandi búa við sjald­gæfa sjúk­dóma eða hve margar teg­undir þeirra finn­ast hér á landi. Skortur á sér­hæfðri með­ferð og ófull­nægj­andi stuðn­ings­kerfi hafa oft víð­tæk og þung­bær áhrif á sjúk­linga og fjöl­skyldur þeirra.

Lands­á­ætl­un­inni er ætlað að mæta þessum áskor­unum. Meðal helstu aðgerða er að tryggja hrað­ari og áreið­an­legri grein­ingu, þar sem sér­stök áhersla verður lögð á nýbura­skimun og tím­an­lega grein­ingu erfða­sjúk­dóma. Áætlunin stefnir einnig að því að jafna aðgengi að ein­stak­lings­mið­aðri heil­brigð­is­þjón­ustu, sér­hæfðum lyfjum og hjálp­ar­tækjum, óháð efna­hag eða búsetu fólks. Að lokum er kveðið á um mik­il­vægi þess að tryggja þver­fag­lega sam­vinnu milli heil­brigðis-, félags- og mennta­kerf­is­ins til að veita sjúk­lingum og fjöl­skyldum þeirra heild­stæðan stuðn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísra­elskur veð­ur­frétta­maður gerði grín að flóð­unum á Gaza

„Ég hef ekki upplifað svona mikla hamingju síðan á sjöunda áratugnum“
Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Innlent

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Dagvöruvísitala ASÍ hækkaði um 0,33 prósent frá ágúst til nóvember. Hækkanir á kjöti og mjólkurvörum vógu þyngst.
Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi