
Þýskum ferðamanni var bjargað úr sjávarháska við Puerto de la Cruz á Tenerife á þriðjudag eftir að sterkur straumur bar hann frá vinsælu sjávarbaðsvæði.
Tilkynning um atvikið barst um klukkan 12.15 en maðurinn hafði þá lent í erfiðleikum í sjónum skammt frá Espadarte-sjávarlauginni við San Telmo. Straumurinn bar manninn frá lauginni og út á sjó en honum tókst að ná taki á kletti og halda sér þar.
Björgunarsveitarmenn og strandverðir brugðust hratt við, komust að manninum og komu honum upp á land.
Maðurinn reyndist ekki hafa orðið fyrir sjáanlegum meiðslum og þurfti ekki á læknisaðstoð að halda eftir björgunina.
Í kjölfar atviksins kom hins vegar í ljós að ferðamaðurinn var ölvaður þegar hann lenti í sjávarháskanum. Talið er að skjót viðbrögð strandvarða hafi komið í veg fyrir að atvikið færi verr.
Yfirvöld hafa ítrekað gefa út leiðbeiningar til ferðamanna að gæta sín á ströndum og baðstöðum Tenerife.
