1
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti

2
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

3
Innlent

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu

4
Fólk

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í

5
Landið

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

6
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

7
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

8
Innlent

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls

9
Minning

Baldur Sveinsson er látinn

10
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

Til baka

Lögregla beitti táragasi við útburð aldraðrar konu í Madríd

Fimmfölduðu leiguna hjá 87 ára gamalli konu

Maria del Carmen Abascal
Útburður aldraðrar konu skekur stjórnmálin
Mynd: Facebook

Táragasi var beitt gegn mótmælendum í Madríd á miðvikudagskvöld þegar óeirðalögregla framfylgdi útburði á 87 ára gamalli konu, Maríu del Carmen Abascal, úr íbúð sinni. Atvikið hefur vakið gífurlega reiði á meðal Spánverja og sett umræður um vaxandi húsnæðiskreppu Spánar á fullt skrið.

Hundruð manna og meðlimir húsnæðisréttindahópa söfnuðust saman við íbúðina í Retiro-hverfinu til að reyna að koma í veg fyrir útburðinn. Lögregla mætti á svæðið beitti táragasi og dró mótmælendur á brott til að rýma innganginn. Hin 87 ára gamla María, sem hafði búið í íbúðinni í yfir sjö áratugi, var að lokum borin út á sjúkrabörum vegna örmögnunar og flutt á sjúkrahús.

Leigan fimmfaldaðist

Rætur málsins liggja í sölu íbúðarinnar til fjárfestingafélagsins Urbagestión árið 2020. Félagið hækkaði í kjölfarið mánaðarlega leigu úr 500 evrum í 2.650 evra. Það er upphæð sem María átti enga möguleika á að greiða af 1.350 evru mánaðarlegum lífeyri sínum.

Þrátt fyrir að lögmaður hennar og aðgerðasinnar hafi reynt að semja og óskilgreindur velgjörðarmaður hafi jafnvel boðist til að greiða hina háu leigu hafnaði leigusalinn öllum tilboðum. Hæstiréttur Spánar úrskurðaði að lokum eigendunum í hag á þeim grundvelli að gamli leigusamningurinn væri runninn út.

Pólitískur titringur á hæsta stigi

Atvikið hefur skekið spænsk stjórnmál og kallað á hörð viðbrögð frá ráðamönnum. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, stóð frammi fyrir spurningum um málið á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York og kallaði atburðinn „félagslegan harmleik“. Húsnæðismálaráðherra landsins, Teresa Rodríguez, tók í sama streng og fordæmdi spákaupmennsku á húsnæðismarkaði.

Stjórnmálaflokkar á vinstri vængnum, þar á meðal samstarfsflokkurinn Sumar, krefjast þess nú að sett verði bráðabirgðastöðvun á útburði í landinu. Á sama tíma saka íhaldssamir stjórnmálamenn vinstri menn um að nota harmleikinn í pólitísku áróðursskyni.

Mótmælin á miðvikudagskvöld beindust einnig gegn héraðsstjóra Madrídar, Isabel Díaz Ayuso, en hún hefur áður verið gagnrýnd vegna umdeildra kaupa á lúxusíbúð og þykir tákngervingur þess ójafnaðar sem ríkir á spænskum fasteignamarkaði um þessar mundir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Susan Sarandon meðal handtekinna við mótmæli gegn Netanyahu
Heimur

Susan Sarandon meðal handtekinna við mótmæli gegn Netanyahu

„Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað“
Innlent

„Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað“

Ölvuðum ferðmanni bjargað úr lífshættu á Tene
Heimur

Ölvuðum ferðmanni bjargað úr lífshættu á Tene

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

Fyrrverandi nunna dæmd í 20 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum
Heimur

Fyrrverandi nunna dæmd í 20 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum

Fundu óskráða vélbyssu og skammbyssu heima hjá íslenskum manni
Innlent

Fundu óskráða vélbyssu og skammbyssu heima hjá íslenskum manni

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu
Myndir
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

Ofbeldisfull nótt Ingólfs endaði með líflátshótunum
Innlent

Ofbeldisfull nótt Ingólfs endaði með líflátshótunum

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

Ætlaði að slá í gegn í íslenska áfengisbransanum en lögreglan handtók hann
Innlent

Ætlaði að slá í gegn í íslenska áfengisbransanum en lögreglan handtók hann

Heimur

Susan Sarandon meðal handtekinna við mótmæli gegn Netanyahu
Heimur

Susan Sarandon meðal handtekinna við mótmæli gegn Netanyahu

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída
Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída

Lögregla beitti táragasi við útburð aldraðrar konu í Madríd
Heimur

Lögregla beitti táragasi við útburð aldraðrar konu í Madríd

Ölvuðum ferðmanni bjargað úr lífshættu á Tene
Heimur

Ölvuðum ferðmanni bjargað úr lífshættu á Tene

Fyrrverandi nunna dæmd í 20 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum
Heimur

Fyrrverandi nunna dæmd í 20 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum

Breskri móður bjargað úr haldi mannræningja
Heimur

Breskri móður bjargað úr haldi mannræningja

Loka auglýsingu