
Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki sal allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, flutti þar ræðu í gær. Fulltrúar fjölda ríkja gengu hins vegar út í mótmælaskyni vegna þjóðarmorðs Ísraels á Gaza.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki viðstödd þegar Netanjahú steig í pontu. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu var hún á sama tíma stödd á viðburði um stuðning við UNRWA, flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn. Fyrr um daginn hafði hún einnig tekið þátt í ráðherrafundi um tveggja ríkja lausnina.
Í skriflegu svari við fyrirspurn Mannlífs um það hvers vegna fulltrúi Íslands hafi ekki gengið út eins og flestir aðrir fulltrúar, segir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, að fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum hafi setið í sæti Íslands á fundinum.
„Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum sat í sæti Íslands. Ísland, eins og önnur norræn ríki, hefur sæti landsins ávallt mannað í umræðum í ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna,“ segir í svari ráðuneytisins.
Íslensk yfirvöld ákváðu í mars síðastliðnum að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Í fyrra gaf Alþjóða glæpadómstóllinn út handtökuskipun á hendur Benjamín Netanyahu, vegna þeirra stríðsglæpa sem framdir hafa verið á Gaza.
Hálftómur salur
Samkvæmt AP-fréttastofunni var salurinn hálftómur þegar Netanjahú flutti ræðu sína. Við upphaf hennar fögnuðu sumir viðstaddir forsætisráðherranum en aðrir púuðu og gengu út.
Í ræðu sinni hafnaði Netanjahú ásökunum um að Ísrael fremdi þjóðarmorð á Gaza og kallaði þær „stærstu lygi aldarinnar“.
„Ef það eru einhverjir aðrir siðferðislegir hugleysingjar sem hafa ekki enn yfirgefið salinn, vinsamlegast gerið það núna,“ sagði hann.
Síðar í ræðunni sagði hann að árásir Ísraels á Íran hefðu verið „ein auðveldasta ákvörðun sem ég hef nokkurn tíma þurft að taka.“
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, gat ekki mætt á allsherjarþingið eftir að bandarísk stjórnvöld synjuðu honum á ný um vegabréfsáritun. Hann ávarpaði því þingið á myndskeiði.
