
Íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða 400 þúsund króna sekt fyrir brot gegn vopnalögum. Málið á rætur að rekja til húsleitar lögreglu í mars 2024 þar sem fjöldi vopna, vopnaíhluta og annars búnaðar fannst.
Lögregla hóf rannsókn hér á landi eftir að upplýsingar bárust um að maðurinn hefði verið handtekinn á flugvelli í Maryland í Bandaríkjunum, grunaður um ólöglegan útflutning á skotvopnum, skotfærum og íhlutum skotvopna.
Við húsleit á heimili hans 15. mars 2024 fundust meðal annars skotvopn, skotgeymar, hljóðdeyfar og ýmsir íhlutir. Sérstaklega vekur athygli að þar fannst einnig óskráð safnvopn, vélbyssa, auk skotvopns sem skráð var á þriðja aðila. Vélbyssan var þó ekki meðal þeirra muna sem ákært var vegna í málinu sem nú hefur verið dæmt.
Ákæran laut meðal annars að óskráðri skammbyssu, loftriffli, riffilhlaupi, skammbyssuhlaupum og sleða, hljóðdeyfum og skotgeymum. Maðurinn hélt því meðal annars fram að hluti munanna væri aðeins varahlutir en ekki sjálfstæð skotvopn.
Dómurinn féllst ekki á þau sjónarmið að öllu leyti og sakfelldi manninn vegna skammbyssunnar, loftriffilsins og nokkurra nauðsynlegra íhluta skotvopna. Hann var hins vegar sýknaður vegna hljóðdeyfa, skotfærabeltis og skammbyssuhulstra.
Maðurinn var dæmdur til 400 þúsund króna sektar, en greiði hann hana ekki kemur 24 daga fangelsi í staðinn. Þá voru skammbyssan, loftriffillinn og nokkrir vopnaíhlutir gerðir upptækir.