
Ingólfur Steinar Ingólfsson hefur verið dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni eftir að hafa ráðist gegn lögreglumönnum í Reykjavík. Hann skallaði einn lögreglumann tvívegis og réðst síðar gegn öðrum lögreglumanni með því að skalla hann og bíta ítrekað í hann.
Atvikin áttu sér stað þriðjudaginn 19. nóvember 2024 og hófust á skemmtistað í Reykjavík. Þar veittist Ingólfur með ofbeldi að lögreglumanni sem var við skyldustörf og skallaði hann tvívegis í höfuðið. Lögreglumaðurinn hlaut yfirborðsáverka á höfði af árásinni.
Ingólfur var í kjölfarið fluttur með lögreglubifreið frá skemmtistaðnum að lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
Þegar komið var að lögreglustöðinni og lögreglumenn voru að færa Ingólf úr bifreiðinni réðst hann að öðrum lögreglumanni. Ingólfur skallaði lögreglumanninn í höfuðið og beit hann ítrekað.
Ofbeldinu lauk þó ekki þar. Þegar verið var að færa Ingólf í fangaklefa á lögreglustöðinni hótaði hann fjórum lögreglumönnum, sem allir voru við skyldustörf, lífláti.
Ingólfur játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var játning hans var metin honum til málsbóta.
Fram kemur í dómnum að Ingólfur eigi nokkurn sakaferil að baki sem nái aftur til ársins 2000. Hann hefur á þeim tíma hlotið 18 refsidóma fyrir margháttuð brot og sex sinnum verið dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisvistar. Meðal annars var hann árið 2014 dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Brotin í nóvember 2024 fólu jafnframt í sér rof á skilorði dóms frá febrúar 2023. Þá hafði Ingólfur verið dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ingólfur hafði auk þess hlotið tvo dóma á Spáni árið 2025, annars vegar 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi og hins vegar 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.
Héraðsdómur taldi, meðal annars með hliðsjón af sakaferli Ingólfs, ekki unnt að skilorðsbinda refsingu hans. Var hann dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og til greiðslu samtals 458.608 króna í málsvarnarþóknun og annan sakarkostnað.