
Gæsluvarðhald yfir þremur mönnum hefur verið framlengt í tengslum við umfangsmikla rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fíkniefnamisferli og peningaþvætti.
Tveir mannanna þurfa að sæta gæsluvarðhaldi til 2. október en varðhald þess þriðja hefur verið framlengt til 28. september.
Alls voru sex menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum eftir að lögreglan réðist í umfangsmiklar aðgerðir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdar voru húsleitir og handtökur og lagt hald á bæði fjármuni og fíkniefni.
Allir sex eru íslenskir ríkisborgarar.
Ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur mönnunum og eru þeir því ekki lengur í varðhaldi vegna málsins.
Lögreglan segir rannsóknina miða ágætlega en veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
