1
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

2
Innlent

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli sem þarfnast umhyggju

4
Innlent

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

5
Heimur

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

6
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

7
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

8
Innlent

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda

9
Pólitík

Smári McCarthy: Aðild að ESB þýðir ekki að Ísland missi sjálfstæði

10
Innlent

Innbrot í heimabæ Stjörnunnar

Til baka

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis

„Hún verður auðvitað að fá tækifæri“

Daria Peremot
Daria PeremotRunolfur vill gefa dr. Dariu tækifæri
Mynd: Facebook

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, hefur haft samband við úkraínsku lækninn Dariu Peremot eftir að hún greindi frá því í viðtali við Skessuhorn í síðustu viku að hún starfaði á veitingastað á Íslandi þrátt fyrir að vera sérmenntuð háls-, nef- og eyrnalæknir. Þetta kemur fram í nýrri frétt Skessuhorns.

Daria hefur búið hér á landi í fjögur ár og tekið próf við læknadeild Háskóla Íslands til að staðfesta þekkingu sína, en hefur engu að síður ekki fengið tækifæri til að starfa sem læknir.

Runólfur segir að viðtalið hafi haft áhrif á sig og orðið til þess að hann ákvað að kanna málið.

„Ég sá þetta viðtal og mér rann það til rifja af hverju hún hefði ekki fengið tækifæri til að nota menntun sína á Íslandi. Auðvitað vil ég reyna að skoða hennar mál en það er líka mjög mikilvægt að skoða þessi mál í heild sinni. Hvernig sé almennt haldið á málum gagnvart flóttafólki í hennar stöðu sem er með mjög dýrmæta menntun og reynslu. Það þarf að tryggja að það fái tækifæri.“

Ætlar að hitta hana

Forstjórinn hefur þegar haft samband við Dariu og hyggst hitta hana til að fara yfir hvaða svör hún hefur fengið við umsóknum um störf.

Hann segir það sláandi ef fólk er látið taka próf til að staðfesta hæfni sína en fái síðan ekki tækifæri til að afla sér þeirrar starfsreynslu sem þarf til að fá starfsleyfi.

„Við á Landspítalanum erum helsta menntastofnun landsins á þessu sviði og það þarf að fara ofan í saumana á þessu. Auðvitað eru margar hliðar á þessu. Prófið er eitt en það þarf að öðlast ákveðna klíníska færni og stundum er reynslutíminn of stuttur, til dæmis ef það eru tungumálaerfiðleikar eða mikill munur á hefðum og venjum í heilbrigðisþjónustu og hér og þar sem fólkið starfaði áður.“

Vill skoða málið betur

Runólfur bendir jafnframt á að Landspítalinn taki á móti stórum hópi læknanema og nýútskrifaðra lækna á hverju ári sem þurfi einnig starfsþjálfun.

Þeir hafi forgang, en hann segir að það megi ekki leiða til þess að fólk með verðmæta menntun og reynslu sitji eftir án tækifæra.

„Það þarf að gera okkur kleift að gera það. Þarna þarf að fara vel yfir málið og koma í veg fyrir að svona sé farið með fólk og dýrmæta menntun,“ segir Runólfur Pálsson.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum
Innlent

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum

Lögreglan hefur aukið eftirlit
Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram
Heimur

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml
Myndband
Heimur

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml

Sindri og Særún starfa saman
Innlent

Sindri og Særún starfa saman

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots
Myndband
Innlent

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

Kona dæmd fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Laugardalnum
Innlent

Kona dæmd fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Laugardalnum

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna
Pólitík

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna

Bullandi tap hjá borgarfulltrúa
Slúður

Bullandi tap hjá borgarfulltrúa

Gullfallegt hús á risastórri lóð til sölu
Myndir
Fólk

Gullfallegt hús á risastórri lóð til sölu

Einn á bráðamóttöku eftir slys
Innlent

Einn á bráðamóttöku eftir slys

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda
Innlent

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“
Heimur

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“

Innlent

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum
Innlent

Vasaþjófar á ferðinni í miðbænum

Lögreglan hefur aukið eftirlit
Kona dæmd fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Laugardalnum
Innlent

Kona dæmd fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Laugardalnum

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis
Innlent

Forstjóri Landspítalans vill skoða mál úkraínsks læknis

Sindri og Særún starfa saman
Innlent

Sindri og Særún starfa saman

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots
Myndband
Innlent

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

Loka auglýsingu