
Fyrrverandi forseti FIFA, Sepp Blatter, hefur hvatt knattspyrnuáhugamenn til að sniðganga leiki í Bandaríkjunum á HM í sumar vegna alvarlegra áhyggja af öryggi og framgöngu yfirvalda.
Blatter skrifaði á samfélagsmiðla í stuðningi við Mark Pieth, svissneskan lögmann í baráttu gegn spillingu, sem hefur ráðlagt aðdáendum að forðast ferðalög til Bandaríkjanna í kjölfar „misnotkunar af hálfu útlendingastofnana“.
Á innan við þremur vikum hafa tveir bandarískir ríkisborgarar verið skotnir til bana í Minneapolis í Minnesota eftir harðari aðgerðir innflytjendalögreglu sem hafa kveikt öldu mótmæla í borginni. Um er að ræða Renee Good og Alex Pretti. Sá síðarnefndi var skotinn á laugardag þegar hann var að taka upp mótmæli, þrátt fyrir myndbandsupptökur sem sýna að hann ógnaði ekki alríkislögreglumönnum. Myndbönd benda einnig til þess að Good hafi ekki verið ógn þegar hún var drepin.
Blatter vitnaði í Pieth í færslu sinni á mánudag og bætti við eigin stuðningi:
„Fyrir stuðningsmenn er aðeins eitt ráð: haldið ykkur fjarri Bandaríkjunum! Ég tel að Mark Pieth hafi rétt fyrir sér að efast um þetta heimsmeistaramót.“
HM í knattspyrnu fer fram dagana 11. júní til 19. júlí og verður haldið sameiginlega í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Alls verða 78 leikir spilaðir í 11 bandarískum borgum.
Pieth sagði í viðtali við svissneska miðilinn Tages-Anzeiger í síðustu viku:
„Það sem við sjáum innanlands, jaðarsetningu pólitískra andstæðinga, misnotkun innflytjendaþjónustu og fleira, hvetur vart stuðningsmenn til að fara þangað. Fyrir stuðningsmenn er eitt ráð: forðist Bandaríkin! Þið fáið hvort sem er betra útsýni í sjónvarpinu. Við komuna ættu stuðningsmenn að búast við því að ef þeir hegða sér ekki „rétt“ gagnvart yfirvöldum verði þeir sendir heim tafarlaust. Ef þeir eru heppnir.“
Blatter lét af embætti FIFA-forseta árið 2015 í kjölfar fjölda hneykslismála. Hann og fyrrverandi forseti UEFA, Michel Platini, voru sýknaðir í fyrra af ákærum um svik, skjalafals, misstjórn og misnotkun fjármuna vegna greiðslu upp á meira en tvær milljónir svissneskra franka sem FIFA greiddi Platini árið 2011. Rannsóknin batt enda á feril beggja.
Eftirmaður Blatters hjá FIFA, Gianni Infantino, hefur á sama tíma byggt upp náið samband við Bandaríkjaforseta, Donald Trump.

Komment