Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir upplýsingagjöf oft óskýrar hjá bílastæðum með greiðsluskyldu. Hún deildi reynslu sinni eftir að vera rukkuð 5.750 krónur fyrir að leggja við Kirkjufell.
„Það var leiðinleg sending sem fjölskylda úr Grafarvogi fékk í kjölfar frábærrar dagsferðar um Snæfellsnes,“ skrifar hún í Facebook færslu í morgun. Eftir að stoppa í stutta stund hjá Kirkjufelli barst þeim rukkun í heimabanka en þau höfðu ekki tekið eftir neinum merkjum um gjaldskyldu bílastæðanna. „Grunngjaldið var 1.000 krónur, en þar sem ekki var greitt innan sólarhrings bættist við 4.500 króna vangreiðsluálag og 250 króna færslugjald,“ útskýrir Hanna Katrín.
„Þetta er ekki einsdæmi. Kvartanir vegna svipaðra mála berast bæði Neytendastofu og Neytendasamtökunum nánast vikulega,“ segir Hanna Katrín. Neytendur lýsa óljósri, ósýnilegri eða villandi gjaldtöku sem verður til þess að þau þurfi að borga háa reikninga.
Neytendastofnun hefur skoðað viðskiptahætti nokkurra bílastæðafyrirtækja og komist að því að í fjölda tilfella vanti fullnægjandi leiðbeiningar um greiðslu og aukagjöld ekki tilkynnt fyrir fram.
„Það er dýrt að byggja upp og reka bílastæði. Þess vegna á það ekki að koma á óvart þegar gjald er tekið fyrir afnot af stæðum. En ef fólk fær ekki skýrar upplýsingar um verð og greiðsluskilmála, þá hættir gjaldtakan að vera sanngjörn og jafnvel lögleg,“ skrifar atvinnuvegaráðherra.
Hanna Kristín segir að viðkomandi fyrirtæki hafi verið bent á að lagfæra upplýsingagjöf í samræmi við lög. Stjórnvöld muni fylgja því fast á eftir að úrbæturnar verða raunverulegar. Hún segir stjórnvöld tilbúin að lagfæra lagarammann ef þess þarf því almenningur á rétt á því að þessi mál séu í lagi.
Komment