1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

4
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

5
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

6
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

7
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

8
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

9
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

10
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Til baka

„Ég skammaðist mín fyrir hann“

Rósa, systir Lalla Johns, ætlar efna loforð sem hún gaf bróður sínum

lallijohns2
Lárus Björn Svavarsson var 74 ára þegar hann léstHann var þekktur sem Lalli Johns.
Mynd: Róbert Reynisson

Rósa Ólöf Ólafíudóttir, hjúkrunarfræðingur og djákni, opnar sig um erfið uppeldis ár sín í þættinum Segðu mér á Rás 1. Rósa er systir Lalla Johns en hann féll frá í maí. Hún vinnur núna hörðum höndum að efna loforð sem hún gaf bróður sínum áður en hann lést.

„Ég er alin upp í Reykjavík, ég bjó í fátækrahverfunum, bragganum, Kamp Knox, Pólunum, Fálkagötunni í Grimsby, bara öllum þeim fátækrahverfum sem til voru í Reykjavík á þeim tíma,“ sagði Rósa um uppeldi sitt. „Lífið á þessum tíma var barátta. Mamma mín var algjör reglumanneskja, hvorki drakk né reykti en hún hafði lent í slysi þegar hún var 18 ára gömul. Hryggbrotnaði.“

Í framhaldi þess varð móðir hennar mjög veik í baki en hún hafði gengið í Húðmæðraskólann og hefði því geta orðið kokkur eða ráðskona. Verkirnir voru hins vegar óbærilegir.

„Hún kynnist pabba okkar Lalla þegar hún er 38 ára en hann er þá ekki nema 22 ára. Hann var ekki til í neitt svona stúss með fullorðinni konu. Hann eiginlega gerði ekkert annað en að sofa hjá og barna hana en mamma vildi meira. Vildi halda börnunum, vildi halda manninum. Það gekk ekki. Hann tók flöskuna fram yfir. Hann var vélstjóri. Mikið á sjó. Hann sveik hana þannig að hún stóð ein uppi með fimm börn.“

Rósa segist hafa sjálf lifað nokkuð venjulegu lífi. Hún lærði hjúkrun og eignaðist börn. Hún bar þó blendnar tilfinningar í garð bróður síns á sínum tíma. „Ég skammaðist mín fyrir hann. Hann gat alltaf komið og allt það en ég viðurkenndi ekki fyrir neinum að þetta væri bróðir minn,“ sagði Rósa. Hún trúði honum ekki að það stæði til að gera heimildarmynd um hann, ekki fyrr en hún fékk boðsmiða. „Ég fríkaði út heima hjá mér. Ég gekk um íbúðina. Ég trúði þessu ekki. Þarna var bara skömmin mín og öll bernskan límd upp á tjaldið fyrir alla að sjá. Það hvarflaði ekki að mér að fara á þessa frumsýningu. Bara gleymdu því.“

Nú vinnur hún að bókinni Lalli Johns - sagan öll en hún lofaði bróður sínum, áður en hann lést, að skrifa sögu hans. Það hafi skipt hann miklu máli. „Það var sanngirnismál fyrir hann.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

„Þetta er eins og risar hafi rifið og tætt allt sem eitt sinn lifði hér“
Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

„Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar“
VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Loka auglýsingu