1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

4
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

5
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

6
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

7
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

8
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

9
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

10
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Til baka

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

„Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar“

Sævar Þór Jónsson
Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður,óttast að kerfið sé lamað gagnvart nýrri birtingarmynd mansals

Íslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals hér á landi. Þetta fullyrðir Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður, í aðsendri grein á Vísi. Hann segist í störfum sínum ítrekað hafa fengið inn á sitt borð viðkvæm mál þar sem konur í berskjaldaðri stöðu eru kerfislíkt nýttar af mönnum af erlendum uppruna í þeim eina tilgangi að tryggja þeim síðarnefndu landvistarleyfi og fjárhagslegan ávinning.

Sævar lýsir þessu sem „skuggamansali“ og segir fórnarlömbin vera undir algeru ægivaldi gerenda. Um er að ræða konur sem glíma við fötlun, alvarlega neyslu eða erfiðar félagslegar aðstæður. Ofbeldið sem þær búa við er margþætt. Auk líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis eru þær nýttar fjárhagslega; þvingaðar til að taka lán, afhenda fjármuni eða láta af hendi félagslegt húsnæði.

Alvarlegasta mynd þessa ofbeldis snýr að barneignum. „Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera,“ skrifar Sævar.

Lýsir æpandi aðgerðaleysi yfirvalda

Í greininni gagnrýnir Sævar íslensk yfirvöld harðlega og segir mikið úrræðaleysi og vangetu blasa við innan kerfisins. Þetta eigi jafnt við um lögreglu og barnaverndaryfirvöld, en dæmi séu um að tilkynningar um alvarlegt ofbeldi gegn börnum á þessum heimilum leiði til sáralítilla viðbragða.

„Kerfið virðist lamast þegar flækjustig mála eykst, sem verður til þess að viðkvæmustu hópar samfélagsins búa við algjört bjargarleysi,“ segir Sævar. Hann bendir á að lögreglan skerist oft ekki í leikinn fyrr en gerandi hefur safnað löngum sakaferli eða er undir rannsókn vegna annarra alvarlegra brota. Þolendur eigi hins vegar ekki að þurfa að bíða eftir því.

Sævar kallar eftir tafarlausum viðbrögðum og breytingum á lagalegum úrræðum stofnana. Hann segir það siðferðislega skyldu samfélagsins að rjúfa þögnina og vernda þá sem geta ekki varið sig sjálfir „úr prísund nútímaþrælahalds.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

„Vekur upp spurningar um hvort fundurinn sé að stuðla að hagsmunum Bandaríkjanna eða einhvers konar einkahagsmunum“
Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu
Fólk

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

„Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar“
VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Loka auglýsingu