1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

3
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

4
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

5
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

6
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

7
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

8
Innlent

Manía í miðborginni

9
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

10
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Til baka

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Óheimilt er að fara með barn úr landi nema báðir forsjáraðilar samþykki ferðalagið

Börn á fjalli
BörnMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Stjórnarráðið

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð kvörtunar manns sem taldi að ýmsar stofnanir og aðilar hefðu sýnt af sér vanrækslu og aðgerðarleysi þegar barnsmóðir hans flutti með börn þeirra frá Íslandi án samþykkis hans.

Málið lauk með bréfi umboðsmanns 10. september síðastliðinn og var birt nokkrum dögum síðar á vefsíðu hans.

Kvörtun mannsins beindist meðal annars að grunnskóla barnanna, félagsþjónustu sveitarfélags, lögreglu og lögmanni sem hafði starfað í umboði hans. Taldi maðurinn að þessir aðilar hefðu vitað af fyrirhuguðum flutningi barnsmóðurinnar en hvorki upplýst hann né gripið til annarra aðgerða.

Í niðurstöðu umboðsmanns kemur fram að óheimilt sé að fara með barn úr landi nema báðir forsjáraðilar samþykki ferðalagið. Ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá barns greinir á um utanlandsferð getur sýslumaður úrskurðað um rétt foreldris til að fara með barnið úr landi. Slíkan úrskurð er síðan hægt að kæra til dómsmálaráðherra.

Þá gegnir dómsmálaráðuneytið hlutverki móttökustjórnvalds samkvæmt lögum um afhendingu brottnuminna barna. Í því felst meðal annars samstarf við stjórnvöld annarra ríkja þegar barn hefur verið flutt með ólögmætum hætti milli ríkja.

Umboðsmaður benti á að ekki yrði ráðið af kvörtun mannsins að fyrir lægi úrskurður sýslumanns eða dómsmálaráðuneytisins um heimild móðurinnar til að fara með börnin úr landi. Þá virtist maðurinn ekki hafa leitað til dómsmálaráðuneytisins vegna brottflutnings barnanna.

Hvað lögregluna varðaði hafði heldur ekki verið leitað til nefndar um eftirlit með lögreglu. Umboðsmaður taldi jafnframt að maðurinn ætti fyrst að beina athugasemdum sínum vegna grunnskólans og félagsþjónustunnar til yfirmanna viðkomandi starfsmanna og sveitarfélagsins.

Af þessum sökum taldi umboðsmaður skilyrði ekki uppfyllt til að taka kvörtunina til frekari meðferðar.

Kvörtunin beindist einnig að störfum lögmanns en umboðsmaður tók fram að starfssvið embættisins næði ekki til starfa lögmanna. Sá sem telur lögmann hafa brotið gegn lögum eða siðareglum getur hins vegar lagt fram kvörtun hjá úrskurðarnefnd lögmanna.

Umboðsmaður benti manninum að lokum á að hann gæti leitað til embættisins á ný eftir að niðurstaða viðeigandi stjórnvalda lægi fyrir, teldi hann þá enn tilefni til.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

Samtök leigjenda hafa áhyggjur af þróuninni
„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu
Fólk

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn
Heimur

Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Óheimilt er að fara með barn úr landi nema báðir forsjáraðilar samþykki ferðalagið
Gekk um Akureyri með hníf í hendinni
Innlent

Gekk um Akureyri með hníf í hendinni

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Loka auglýsingu