1
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

2
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

3
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

4
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

5
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

6
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

7
Innlent

Manía í miðborginni

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

10
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Til baka

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Alls voru 43 ákærukaflar í málinu

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik og þjófnaði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þess sem maðurinn sveik út voru fjölmargar kjúklingavörur og súkkulaði, en hann notaði ódýrari strikamerki við sjálfsafgreiðslukassa til að greiða aðeins brot af raunverulegu verði varanna.

Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. september. Maðurinn játaði brot sín skýlaust en alls voru 43 ákærukaflar í málinu. Fallið var frá einum þeirra, sem varðaði skjalafals.

Fyrsta brotið átti sér stað í janúar 2025 þegar maðurinn sveik út Katsu kjúklinga-pokeskál sem kostaði 2.290 krónur. Hann setti strikamerki af vöru sem kostaði aðeins 45 krónur á umbúðirnar og greiddi því 45 krónur fyrir skálina.

Kjúklingur kom ítrekað við sögu næstu vikurnar. Maðurinn sveik meðal annars út Ali Rodizio kjúkling í nokkrum verslunum og voru vörurnar í einstökum tilvikum að verðmæti rúmlega 3.000 krónur. Þá sveik hann út kjúklingabringur og BBQ-kjúklingaspjót. Spjótin kostuðu 7.799 krónur en maðurinn greiddi aðeins 69 krónur fyrir þau með því að nota rangt strikamerki.

Súkkulaði var einnig áberandi í brotahrinunni. Í mars sveik maðurinn út Kinder Delice súkkulaði að verðmæti 798 krónur en greiddi 79 krónur. Hann stal einnig Kinder Maxi súkkulaði í nokkrum tilvikum og í apríl sveik hann út Ferrero súkkulaði sem kostaði 998 krónur með því að nota 79 króna strikamerki.

Listinn yfir vörurnar var þó mun lengri. Þar má meðal annars finna brauð, skyr, ost, kaffi, kartöflur, pekanhnetur, appelsínusafa, pítusósu, egg, orkudrykki, fæðubótarefni og bílahleðslur.

Samkvæmt dóminum hafði maðurinn ekki áður gerst sekur um refsivert brot svo kunnugt væri. Hann játaði brotin, lýsti iðrun og hafði greitt bótakröfu að fjárhæð 61.202 krónur að fullu.

Dómurinn taldi níu mánaða fangelsi hæfilega refsingu með hliðsjón af fjölda brotanna og fjárhæðunum. Fullnustu refsingarinnar var hins vegar frestað og fellur hún niður eftir tvö ár haldi maðurinn almennt skilorð.

Honum var jafnframt gert að greiða rúmlega eina milljón króna í málsvarnarþóknun verjanda síns.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

Samtök leigjenda hafa áhyggjur af þróuninni
„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu
Fólk

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn
Heimur

Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Óheimilt er að fara með barn úr landi nema báðir forsjáraðilar samþykki ferðalagið
Gekk um Akureyri með hníf í hendinni
Innlent

Gekk um Akureyri með hníf í hendinni

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Loka auglýsingu