Fallegt og rúmgott einbýlishús á rúmlega 5.000 fermetra eignarlóð við Reykjahlíðarafleggjara í Mosfellsdal er komið á sölu. Ásett verð eignarinnar er 165 milljónir króna en um er ræða Laugaból 2.
Húsið er 188,4 fermetrar að stærð og var reist árið 1987. Það stendur á 5.005 fermetra gróðursælli lóð og er allt á einni hæð. Núverandi eigendur byggðu húsið og hafa búið þar frá upphafi.
Í húsinu eru fimm svefnherbergi, rúmgóð stofa, sérstakt sjónvarpsherbergi, eldhús og borðstofa. Þá eru þar baðherbergi, gestasnyrting, þvottahús, geymsla og geymsluloft. Fjögur svefnherbergjanna eru á sérstökum svefnherbergisgangi ásamt baðherbergi en fimmta herbergið er við forstofu.
Arkitekt hússins var Egill Guðmundsson og er hönnun þess sögð bæði skemmtileg og vel skipulögð.
Það sem helst vekur athygli við eignina er þó lóðin. Hún er rúmir 5.000 fermetrar og einkennist af miklum og fallegum trjágróðri. Á lóðinni eru jafnframt fjögur gróðurhús og pallur liggur umhverfis húsið.
Eignin stendur í friðsælu umhverfi Mosfellsdals og býður þannig upp á töluvert landrými samhliða rúmgóðu einbýlishúsi skammt frá höfuðborgarsvæðinu.

