Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Við rannsókn málsins fundust jafnframt samskipti í farsíma sem vöktu athygli lögreglu

Ármúli
Ármúli Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Skjáskot/Ja.is

Karl og kona hafa verið dæmd í átta ára fangelsi hvort um sig fyrir að flytja rúmlega 18 kíló af kókaíni til Íslands.

Dómur féll í Héraðs­dómi Reykjaness 24. september. Jose Manuel Del Bosque og Cristina Rodriguez Santos voru ákærð fyrir stórfellt fíkniefna­lagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 18.346 grömmum af kókaíni. Styrk­leiki efnanna var á bilinu 81 til 83 prósent og taldi ákæru­valdið þau ætluð til sölu­dreifingar hér á landi í ágóða­skyni.

Parið kom til landsins frá Frankfurt að kvöldi 27. maí. Konan var stöðvuð af toll­gæslunni á Kefla­víkur­flugvelli en maðurinn var þá kominn út úr flug­stöðinni. Hann sneri aftur eftir að konan hafði samband við hann. Við gegn­umlýsingu á ferða­töskum þeirra kom í ljós óvenju­legur massi í botni beggja taskna og prófanir gáfu jákvæða svörun við kókaíni.

Í annarri töskunni fundust rúmlega 9,1 kíló af kókaíni og rúmlega 9,2 kíló í hinni. Efnunum hafði verið komið fyrir undir fölskum botnum tasknanna.

Við rannsókn málsins fundust jafnframt samskipti í farsíma mannsins sem vöktu athygli lögreglu. Þar á meðal voru samskipti á Telegram við aðila sem notaði notanda­nafnið SanAndres666. Maðurinn hafði sent viðkomandi skjáskot úr Google Maps þar sem leiðin frá Kefla­víkur­flugvelli að Ármúla í Reykjavík hafði verið slegin inn. Hann sendi einnig skjáskot þar sem hann hafði spurt ChatGPT hvað það kostaði að taka Flybus og leigubíl á áfanga­staðinn. Skömmu fyrir miðnætti tilkynnti hann síðan að hann væri lentur á Íslandi.

Maðurinn sagði síðar við lögreglu að hann hefði sent skjáskotið af leiðinni að Ármúla vegna þess að maður, sem hann kallaði Adam, hefði spurt hvert hann væri að fara og hvað hann væri að gera. Hann sagðist jafnframt hafa spurt Adam hvort einhver gæti sótt þau á flug­völlinn.

Bæði neituðu að hafa vitað af kókaíninu og héldu því fram að ferðin til Íslands hefði verið ætluð til ferðalaga og afþreyingar. Dómurinn taldi framburð þeirra hins vegar ótrú­verðugan og í mörgu tilliti með ólíkindablæ. Talið var sannað, hafið yfir skyn­samlegan vafa, að þau hefðu gerst sek um þá háttsemi sem þeim var gefin að sök.

Þau voru bæði dæmd í átta ára fangelsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag