1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

8
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

9
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Hvernig einmana barn verður að ofur-sjálfstæðum fullorðnum einstaklingi

Einmana barn
Sterk út á við, einmana innra með sér
Mynd: Unsplash/Yanhao Fang

Ósýnilegu sárin

Sum börnin sem alast upp við það að finnast þau einmana sýnast oft sterkustu fullorðnu einstaklingarnir. Út á við virðast þau óbrjótanleg; þau eru sjálfstæð, ábyrg, hjálpsöm og fær um að tækla hvað sem er án þess að blikka auga. En á bak við þennan flotta skjöld býr oft á tíðum djúpstæð lífsreynsla. Þegar þú lærir snemma í lífinu að „það er enginn að koma til að bjarga mér, svo ég verð að redda þessu sjálf(ur)“, breytist sjálfsbjargarviðleitni í lífstíl.

Krónískur einmanaleiki í æsku snýst nefnilega ekki alltaf um að vera líkamlega einn. Oft var fólk til staðar, en enginn sá þig raunverulega. Enginn skildi þig, huggaði þig eða bjó til pláss fyrir það sem þér fannst. Samkvæmt greiningum á The Psychology Group fylgir þessi tilfinningalega einangrun fólki inn í fullorðinsárin þar sem taugakerfið festist hreinlega í neyðarstigi, sem mótar sambönd þess á mjög skýran hátt.

Hér eru 7 dæmigerð merki þess að fullorðinn einstaklingur sé enn að berjast við einmanaleika sem innra barnið þróaði með sér:

Þú þróar með þér „ofur-sjálfstæði“ (hyper-independence)

Þú lærðir snemma að það að þurfa á öðrum að halda leiddi nánast alltaf til vonbrigða. Þess vegna líður þér mun betur með að berjast í gegnum hlutina ein(n) og sérð það sem öruggari kost en að eiga á hættu að einhver bregðist þér.

Þú tengist of djúpt hverjum þeim sem „sér“ þig

Þegar þú hefur eytt stórum hluta æskunnar í að líða eins og þú sért ósýnileg(ur), getur örlítil athygli eða viðurkenning virkað eins og stórkostleg ást. Þetta gerir það að verkum að þú átt það til að fyllast mikilli hrifningu eða skuldbindingu fljótt.

Þú efast stöðugt um hvort fólki standi raunverulega á sama um þig

Jafnvel þegar þú ert í kringum fólk sem elskar þig einlæglega, er hluti af þér alltaf á verði. Þú bíður ómeðvitað eftir höfnuninni eða að vera yfirgefin, vegna þess að það er það ástand sem þú þekkir best úr fortíðinni.

Þú upplifir einmanaleika, jafnvel í margmenni

Einmanaleiki þinn snerist aldrei um skort á fólki í kringum þig. Hann snerist um skort á dýpri tengingu þá tilfinningu að enginn skildi raunverulega hvernig þér leið eða hver þú varst í raun og veru.

Þú gerist hlustandinn, hjálparinn eða umönnunaraðilinn

Þú lærðir að vera til staðar fyrir alla aðra. Í laumi vonaðir þú þó alltaf að einhver myndi taka eftir því að þú þurftir líka á stuðningi og hjálp að halda, en þú kunnir ekki að biðja um það.

Þú umberð tilfinningalega fjarlæg sambönd of lengi

Fjarlægð er eitthvað sem þú þekkir. Ef innra barnið þitt lærði að lifa af á algjörri tilfinningalegri lágmarksgetu, geta litlir molar af athygli (e. breadcrumbs) virkað eins og raunveruleg tenging í þínum augum.

Þú veist ekki hvað þú átt að gera þegar einhver mætir raunverulega fyrir þig

Heilbrigð, stöðug og einlæg ást getur valdið þér óþægindum. Þitt varnarsinnaða sjálf lærði nefnilega að elta tengingu og berjast fyrir henni, en það kann ekki að slaka á og taka á móti henni.

Hvernig er hægt að losna við þessa tilfinningu?

Það sem flestir átta sig ekki á er að þegar þú upplifir erfiðleika í þínum samböndum í dag, ertu ekki að bregðast við manneskjunni sem stendur fyrir framan þig. Þú ert í raun enn að reyna að lækna einmana barnið hið innra í gegnum „fullorðinsbúninginn.“ Þess vegna tengist þú of hratt, staldrar við of lengi, óttast fjarlægð eða átt erfitt með að treysta þeim sem ætla að vera um kyrrt.

Batinn hefst þegar þú hættir að yfirgefa sjálfa(n) þig. Þú þarft að syrgja það sem þú fékkst ekki í æsku, leyfa þér að finna tilfinningarnar sem þú þurftir að jarða og átta þig á því að þú þarft ekki lengur að elta ástina til þess að sanna að þú skiptir máli. Þú getur hreinlega ekki læknað það sem þú neitar þér um að finna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu