1
Fólk

Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna

2
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

3
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

4
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

5
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

6
Innlent

Manía í miðborginni

7
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

10
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Til baka

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

„Ráðherrann er einfaldlega ekki trúverðugur“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirMagga Stína er lítt hrifin af utanríkisráðherranum
Mynd: BHJ

Söngkonan og aðgerðasinninn Margrét Blöndal, oftast kölluð Magga Stína, segir enga ástæðu til að hrífast af ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, þrátt fyrir að ræðan hafi vakið mikla athygli og jákvæð viðbrögð víða en þar svarar hún ræðu Benjamins Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels.

Margrét skrifar athugasemd við Facebook-færslu Þórólfs J. Dagssonar þar sem ræða utanríkisráðherrans er birt. Hún gagnrýnir þar bæði ráðherrann og ríkisstjórnina harðlega vegna afstöðu Íslands til stríðsins á Gaza.

„Skil ég það rétt að þú rekir mig upp úr sófanum fyrir ræðu utanríkisráðherra sem hún flutti á alsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær? Ef svo er, vil ég svara þér því þannig að það er engin ástæða til að hrífast nokkuð af þeirri ræðu. Þvert á móti,“ skrifar Margrét.

Hún segir orð utanríkisráðherrans ekki vera trúverðug og gagnrýnir jafnframt vettvanginn sem ræðan var flutt á.

„Orð hennar rista jafndjúpt og tárin sem féllu á sama vettvangi fyrir ári síðan. Ráðherrann er einfaldlega ekki trúverðugur. Vettvangurinn sem hún talar á ekki heldur,“ skrifar hún.

Margrét beinir sérstaklega gagnrýni að samskiptum íslenskra stjórnvalda við ísraelsk stjórnvöld og segir Þorgerði Katrínu ekki hafa gengið nægilega langt í gagnrýni sinni á Ísrael.

„Þorgerður Katrín hefur einungis talað um ísraelsk stjórnvöld sem "vini okkar á villigötum" eins og hún orðaði það víst á sínum tíma,“ skrifar hún.

Hún segir utanríkisráðherrann ekki hafa sýnt í verki vilja til að bregðast við því sem hún sjálf kallar þjóðarmorð á Gaza.

„Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur ekki sýnt í verki nokkra tilburði til að horfast í augu við þann glæp gegn mannkyni sem verið er að fremja í Palestínu eða að henni sé yfir höfuð í mun að hlíta alþjóðalögum eins og henni ber skylda til þegar hún verður vitni að þjóðarmorði.“

Margrét gagnrýnir einnig orðnotkun ráðherrans og segir hana hafa talað um þjóðarmorðið í Rúanda í ræðu sinni en ekki notað sama orð um ástandið á Gaza.

„Þjóðarmorð er orð sem hún hefur alls ekki uppi um þjóðarmorðið á Gaza, þjóðarmorðið sem framið er á palestínsku þjóðinni. Hún talaði um þjóðarmorðið í Rwanda en minntist ekki á þetta þjóðarmorð.“

Hún gagnrýnir jafnframt ríkisstjórnina fyrir samskipti við ísraelsk fyrirtæki og segir þau fela í sér áframhaldandi stuðning við Ísrael.

„Hún og hennar ríkisstjórn hafa brugðist við þjóðarmorðinu á Gaza með áframhaldandi og auknum viðskiptum við ísraelsk fyrirtæki og ekki ber á neinu öðru en áframhaldandi stuðningi hennar og ríkisstjórnarinnar við þjóðarmorðið.“

Margrét segir jafnframt að stjórnvöld hafi aukið þátttöku Íslands í alþjóðlegum hernaðarmálum og gagnrýnir ráðherrann fyrir að tala um frið á sama tíma og hún styðji aukin útgjöld til varnarmála.

„Hún leyfir að tala um frið á sama tíma og hún lofar stríðherrum heimsins auknum fjárúlátum til vopnakaupa til drápa á almennum borgurum.“

Þá gagnrýnir Margrét afstöðu stjórnvalda til flóttafólks og minnihlutahópa og segir hana ósamræmast áherslum utanríkisráðherrans á mannréttindi.

„ÞKG leyfir sér að tala um mannréttindi minnihlutahópa á meðan hún stendur fyrir þeim aukna fasisma sem við öll erum vitni að hér á landi gagnvart minnihluthópum, eins og flóttafólki sem flýr þjóðarmorð og stríð sem hún styður.“

Að lokum segir Margrét að hún muni ekki láta ræðu utanríkisráðherrans sannfæra sig um breytta stefnu stjórnvalda.

„Ég blindast því ekki af innihaldslausum setningum um "ástandið á Gaza" úr munni Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.“

Hún lýkur færslunni með tilvísun í spurninguna „Who are the REAL moral cowards?“ og segir:

„Svar mitt við þeirri spurningu er: Það fólk sem styður við þjóðarmorð, beint, og óbeint og því miður hefur utanríkisráðherra tilheyrt þeim hópi en Þòròlfur Júlían Dagsson, ég verð fyrst til að spretta upp úr sófanum þegar ég sé ríkisstjórn Íslands sinna ófrávíkjanlegri skyldu sinni samkvæmt alþjóðalögum um að gera allt sem í hennar valdi stendur til að stöðva og koma í veg fyrir þjóðarmorð. Þær vita nákvæmlega hvað þær eiga að gera.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Hún gerði lítið úr fjölda lögreglumanna sem komu að málinu
Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn
Heimur

Breskur glímukappi látinn degi eftir síðasta bardaga sinn

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Gekk um Akureyri með hníf í hendinni
Innlent

Gekk um Akureyri með hníf í hendinni

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

„Ráðherrann er einfaldlega ekki trúverðugur“
Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn
Pólitík

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Pólitík

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

Loka auglýsingu