1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

6
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

7
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

8
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

9
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

10
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Til baka

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Ragnar Agnarsson, fyrrverandi forstjóri, opnar sig um erfiðleika lífsins

Ragnar Agnarsson
Ragnar Agnarsson
Mynd: Skjáskot

Ragnar Agnarsson, fyrrverandi forstjóri og einn eigenda SagaFilm, segir krabbameinsgreiningu hafa gjörbreytt sýn sinni á lífið og kennt sér að lifa upp á nýtt. Ragnar er nýjasti gestur hlaðvarps Sölva Tryggvasonar þar sem hann ræðir opinskátt um veikindin, erfiðar meðferðir og þá lífsreynslu sem fylgdi í kjölfarið.

Ragnar segir breytingar á lífssýn sinni hafa hafist nokkrum árum áður en hann greindist. Árið 2019 fór hann meðal annars í Ayahuasca ferð til Perú, sem hann lýsir sem ákveðnum vendipunkti. Upphaflega hafi ætlunin verið að verða betri í viðskiptum og að afla tekna, en upplifunin hafi orðið allt önnur og ýtt honum út í mikla sjálfsskoðun.

Stærsti vendipunkturinn kom þó þegar Ragnar greindist með krabbamein. Hann hafði fundið fyrir óþægindum í hálsi og leitaði til læknis án þess að gera ráð fyrir að eitthvað alvarlegt væri að. Í kjölfar rannsókna fékk hann þær fréttir að um krabbamein væri að ræða.

Ragnar segir greininguna hafa orðið til þess að hann endurmeti líf sitt frá grunni. Hann hafi áttað sig á því að hann hefði um árabil verið á stöðugri ferð án þess að staldra við og njóta augnabliksins.

„Því miður þurfti ég krabbamein til að átta mig. En núna get ég sannarlega sagt að þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Við tók mjög krefjandi meðferðarferli. Ragnar fór í 36 geislameðferðir á hálsi auk sex lyfjameðferða. Hann segir íslenska heilbrigðiskerfið hafa tekið einstaklega vel á móti sér og að hann hafi ákveðið að treysta hefðbundnum krabbameinsmeðferðum. Samhliða þeim segist hann hafa notað THC og kannabisolíu til að lina verki og bæta matarlyst og svefn, auk þess sem hann hafi tekið Ayahuasca í smáskömmtum.

Meðferðirnar reyndust honum afar erfiðar og segist Ragnar á tímabili hafa íhugað að hætta baráttunni. Umhyggja heilbrigðisstarfsfólks hafi hins vegar haft djúpstæð áhrif á hann og styrkt ákvörðun hans um að halda áfram.

Í dag segist Ragnar fyrst og fremst finna fyrir miklu þakklæti. Hann líti svo á að veikindin hafi neytt hann til að staldra við, kynnast sjálfum sér betur og endurmeta hvað skipti raunverulega máli í lífinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir og lagahöfundur, segir dauða rúmlega ársgamallar stúlku í rússneskri árás á Kharkív minna á þann hrylling sem úkraínskir borgarar búi við daglega. Hann gagnrýnir jafnframt hörð viðbrögð fjölmargra Íslendinga við fréttum af íslenskum stuðningi við Úkraínu.
Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Myndband
Fólk

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Loka auglýsingu