
Bill Gates, einn ríkasti maður heims, fer ekki í launkofa með svartsýna sýn sína á framtíð gervigreindar og segir tæknina geta að lokum orðið svo öflug að hún geti valdið dauða allt að milljarðs manna.
Í þætti „Meet the Press“ í gær sagði Gates við þáttastjórnandann Kristen Welker að ef gervigreind væri misnotuð og ekki haft nægilegt eftirlit með henni gæti hún leitt til hættulegra atburða sem kostuðu milljarða mannslífa.
„Gervigreind er vissulega nógu öflug til að koma af stað atburðum sem valda dauða milljarðs manna. Þannig að þótt það sé ansi erfitt að ná 100 prósenta vissu, hefur aldrei verið til vopn jafn öflugt og sambland af fólki með illan ásetning og nýjustu verkfæri gervigreindarinnar,“ sagði Gates.
Hann bætti við að hann vildi óska þess að auðveldara væri að greina á milli góðs og slæms ásetnings.
„Ég vildi að það væri auðveldara að greina á milli góðs ásetnings, eins og þegar ég vil hanna nýtt lyf við sjúkdómi, og neikvæðs ásetnings, þar sem ég vil hanna tæki til lífrænna hryðjuverka.“
Ummæli Gates, þar sem hann kallar jafnframt eftir því að löggjafarvaldið setji reglur um nýju tæknina, koma í kjölfar vaxandi umræðu og áhyggna af framtíð gervigreindar undanfarið.
Aðeins nokkrum vikum áður steig uppljóstrarinn Jacob Coxon fram og varaði við því að um 10 prósenta líkur væru á heimsendi af völdum gervigreindar.
Skömmu síðar greindi OpenAI frá nokkrum dæmum um getu gervigreindar til að framkvæma tölvuárásir og öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders lagði fram frumvarp sem myndi banna svokallaða ofurgervigreind.
Donald Trump, sem hefur kallað áhyggjur af gervigreind „gabb“, hefur jafnframt sagt að hann vilji koma á fót sérstakri gervigreindarsveit.
