
33 ára japanskur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa brotist ítrekað inn á heimili konu sem hann kynntist í gegnum tölvuleik á netinu. Maðurinn er sagður hafa farið inn í íbúð hennar meira en hundrað sinnum án leyfis.
Maðurinn, Jun Okada, var sakfelldur meðal annars fyrir húsbrot og þjófnað auk brota sem tengdust leynilegum upptökum af konunni. Héraðsdómur Tókýó dæmdi hann 24. september í tveggja ára og sex mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í fjögur ár.
Okada og konan kynntust í gegnum netleik í desember 2022. Sumarið 2023 dvaldi hann næturlangt á heimili hennar og spurði hana morguninn eftir hvort hún vildi vera kærasta hans. Konan hafnaði honum, meðal annars vegna óstöðugrar fjárhagsstöðu hans.
Okada sætti sig ekki við höfnunina og hélt áfram að mæta óboðinn þar til konan lokaði á öll samskipti við hann.
Í október 2023 komst hann inn í íbúð hennar í gegnum ólæstan glugga á svölum. Þar fann hann upplýsingar sem gerðu honum kleift að útbúa aukalykil að íbúðinni. Í kjölfarið hófust reglulegar heimsóknir hans án vitundar konunnar.
Samkvæmt saksóknurum braust Okada meira en hundrað sinnum inn á heimili hennar. Hann stal meðal annars nærfötum hennar og þremur útrunnum ökuskírteinum. Fyrir dómi sagðist hann hafa tekið gömlu ökuskírteinin vegna þess að hann vildi sjá hvernig útlit hennar hefði breyst í gegnum árin.
Hann tók jafnframt ljósmynd af gildu skilríki hennar en sagðist hafa ákveðið að stela því ekki þar sem það myndi valda henni vandræðum.
Okada dvaldi stundum í allt að tvær klukkustundir í íbúðinni meðan konan var fjarverandi. Þar borðaði hann mat hennar, slakaði á og stundaði sjálfsfróun í herbergi hennar.
Í mars á þessu ári kom hann einnig fyrir falinni myndavél í stofunni. Myndavélin var dulbúin sem USB-hleðslutæki og notaði hann hana til að taka konuna upp nakta og á nærfötunum. Hann kom reglulega aftur í íbúðina til að skipta um minniskort í tækinu.
Fyrir dómi kom jafnframt fram að Okada hefði stundum þrifið íbúðina og fyllt á ísskápinn með orkudrykkjum. Hann sagðist hafa viljað „koma henni að gagni“. Þá hafði hann keypt ný nærföt í stað þeirra sem hann stal.
Upp komst um brotin 19. mars þegar konan kom heim um klukkan fimm síðdegis. Okada var þá inni í íbúðinni og hafði læst hurðinni innan frá. Þegar konan komst ekki inn reyndi hann að flýja út um svalirnar en rakst þar á hana.
Lögregla kom skömmu síðar á vettvang og handtók hann og játaði hann brotin fyrir dómi.
Í yfirlýsingu sem lesin var upp fyrir dómi lýsti konan miklum óhug vegna háttsemi Okada og sagði ógnvekjandi að hann hefði reynt að komast að nánast öllu um líf hennar. Hún fór fram á að honum yrði refsað harðlega.
Okada bað konuna að lokum afsökunar og sagðist gera sér grein fyrir að honum væri óheimilt að hafa samband við hana.
