Fimm menn sem handteknir voru í Bretlandi í gær í tengslum við rannsókn hryðjuverkadeildar lögreglunnar eru allir breskir ríkisborgarar búsettir í Lundúnum. Mennirnir eru á aldrinum 20 til 25 ára.
Hryðjuverkadeildin greindi frá þessu í dag og sagði umfangsmikla og afar flókna lögregluaðgerð enn standa yfir. Rannsókn beinist meðal annars að því hvað búi að baki málinu.
Miklar vangaveltur hafa verið um tengsl málsins við Fairford-flugvöll, sem bandaríski flugherinn hefur nýtt í tengslum við stríðið gegn Íran. Breska lögreglan hefur hvatt til þess að henni verði veitt svigrúm til að rannsaka málið áður en frekari ályktanir eru dregnar.
Íbúar í nágrenni Fairford-flugvallar segja jafnframt að öryggisgæsla á svæðinu hafi verið hert nokkrum dögum áður en handtökurnar fóru fram.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum urðu íbúar varir við auknar öryggisráðstafanir allt að fimm dögum fyrir aðgerðir lögreglu og handtöku mannanna.

