
Helgi Bjartur Þorvarðarson situr áfram í gæsluvarðhaldi eftir að dómari ákvað að framlengja gæsluvarðhaldið til 3. apríl næstkomandi en Morgunblaðið greinir frá þessu
Helgi hefur verið ákærður í alvarlegu sakamáli sem tengist meintum brotum gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði í september á síðasta ári. Auk þess er hann einnig ákærður fyrir vændiskaup sem áttu að hafa átt sér stað á sama sólarhring og meint kynferðisbrot gegn drengnum.
Samkvæmt Karli Inga Vilbergssyni varahéraðssaksóknara mun aðalmeðferð málsins fara fram 23. þessa mánaðar, og hefur verið ákveðið að þinghaldið verði lokað, sem þýðir að almenningur og fjölmiðlar fá ekki að vera viðstaddir vegna eðlis málsins.
Samkvæmt ákæru er Helgi Bjartur sakaður um að hafa framið innbrot, nauðgun og önnur kynferðisbrot gegn tíu ára dreng snemma morguns 14. september síðastliðinn. Atburðirnir áttu að hafa átt sér stað í Hafnarfirði.
Í sömu ákæru kemur einnig fram að Helgi Bjartur hafi keypt vændi á sama sólarhring, þ.e. þann dag sem meint brot gegn drengnum áttu að hafa gerst.
Helgi hefur lýsti yfir sakleysi sínu.

Komment