
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum í miðbæ Reykjavíkur í nótt, þar á meðal vegna líkamsárása, fíkniefnamála og umferðarlagabrota.
Tveir menn voru handteknir í miðbænum grunaðir um stórfellda líkamsárás auk vörslu ávana- og fíkniefna. Mennirnir voru færðir á lögreglustöð og er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Þá var lögreglu einnig óskað á hótel í miðbænum eftir að flugeldum hafði verið skotið inn um glugga hjá gesti. Nokkuð eignatjón varð vegna atviksins, en sem betur fer slasaðist enginn.
Lögregla handtók einnig tvo ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þeir voru fluttir á lögreglustöð þar sem þeir fóru í hefðbundið ferli vegna málsins.
Auk þess barst tilkynning um líkamsárás sem reyndist minniháttar þegar lögregla kom á vettvang. Málið er engu að síður í rannsókn.
Þá var ökumaður kærður fyrir ítrekaðan akstur án gildra ökuréttinda.

Komment