
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust fjölmargar tilkynningar í gærkvöldi og í nótt og hafði hún afskipti af nokkrum málum sem nú eru til rannsóknar.
Tilkynnt var um þjófnað í matvöruverslun og er málið í rannsókn. Þá var einnig tilkynnt um árekstur þar sem ökumaður stakk af af vettvangi. Lögregla rannsakar málið.
Einnig var tilkynnt um rúðubrot í heimahúsi í Reykjavík og er það mál til rannsóknar. Þá barst tilkynning um meiriháttar líkamsárás og vinnur lögregla að rannsókn þess máls.
Lögregla hélt jafnframt uppi sérstöku innbrotaeftirliti í tveimur hverfum borgarinnar. Þá var einnig tilkynnt um innbrot í heimahús í Árbænum og er það mál til rannsóknar.
Í umferðinni hafði lögregla afskipti af nokkrum ökumönnum. Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Við nánari athugun kom í ljós að viðkomandi var einnig sviptur ökuréttindum. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Annar ökumaður var stöðvaður við akstur án ökuréttinda og á hann yfir höfði sér sekt. Þá var eigandi bifreiðar sektaður vegna lagningar ökutækis síns.
Lögregla hafði einnig afskipti af ölvuðum einstaklingi í matvöruverslun sem hafði verið að áreita fólk. Viðkomandi var fluttur heim til sín.
Þá var tilkynnt um hóp ungmenna sem kastaði snjóboltum í bifreiðar. Hópurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn.
Að auki voru skráningarmerki fjarlægð af fjórum bifreiðum þar sem þær reyndust ekki vera tryggðar.

Komment