
Jóhann Helgi Í. Kristjánsson hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur.
Honum var gefið að sök fíkniefnalagabrot með því að hafa mánudaginn 17. maí 2021 haft í vörslum sínum samtals 126 kannabisplöntur í ræktun sem samtals vógu 24.930,29 grömm og fyrir að hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað þar framangreindar kannabisplöntur. Samkvæmt dómnum var sú minnsta 6 sentímetrar en sú stærsta 85 sentímetrar.
Jóhann játaði sök en hann hefur ítrekað áður gerst sekur um refsivert athæfi. Hann var dæmdur í 60 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Sex viftur, einn mælir, tvær loftsíur, sex lampar, þrjár loftdælur og einn tíma/hitastillir voru meðal þess sem var gert upptækt.
Hann þarf að greiða 713.902 krónur í sakarkostnað.
Komment