1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

3
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

4
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

5
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

6
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

7
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

8
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

9
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

10
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

Til baka

Jóhann Helgi vill friða hrafninn

„Kannski er kominn tími til að við horfum á hrafninn öðrum augum“

Jóhann Helgi og Dimma
Jóhann Helgi og DimmaDimma hefur ekki komið heim í þrjár vikur
Mynd: Víkingur

Jóhann Helgi Hlöðversson segir tímabært að endurskoða stöðu hrafnsins á Íslandi og afturkalla þá heimild sem gerir kleift að veiða fuglinn allt árið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti í kjölfar mikillar athygli sem hrafninn Dimma hefur vakið en hún hefur nú verið týnd í nokkrar vikur.

Jóhann segir viðbrögð landsmanna hafa komið sér á óvart og að fuglinn hafi greinilega unnið sér sess í hjörtum margra.

„Margar vísbendingar berast daglega um Dimmu. Hún virðist eiga hjarta þjóðarinnar og njóta ótrúlegrar samúðar. Ég er hrærður yfir þessum mikla og sívaxandi áhuga landsmanna á hrafninum, því slíkt er alls ekki sjálfgefið.“

Hann bendir á að samkvæmt gildandi reglum sé hrafn réttdræpur allt árið hér á landi, þótt allir villtir fuglar séu almennt friðaðir.

Í færslunni lýsir Jóhann hrafninum sem einstaklega greindum fugli og telur að neikvætt viðhorf til hans eigi sér litla stoð.

„Hrafninn er stórmerkilegur fugl og telst til greindustu dýrategunda heims. Hann er úrræðagóður, útsjónarsamur og einstaklega fær um að bjarga sér. Kannski er það einmitt þess vegna sem honum hefur stundum verið mætt með tortryggni og jafnvel hatri.“

Jóhann segir hrafna mynda sterk fjölskyldutengsl og sýna hegðun sem bendi til flókins tilfinningalífs. Hann telur því eðlilegt að endurskoða lagalega stöðu fuglsins.

„Er ekki orðið tímabært að endurskoða stöðu hrafnsins, setja hann í flokk með öðrum íslenskum fuglum og afturkalla þessa takmarkalausu veiðiheimild?“

Að lokum bendir hann á að hrafninn sé ekki aðeins mikilvægur hluti íslenskrar náttúru heldur einnig menningararfs þjóðarinnar.

„Kannski er kominn tími til að við horfum á hrafninn öðrum augum — ekki sem óvin, heldur sem einn merkilegasta fugl Íslands.“

Með færslunni birti Jóhann Hrafn myndskeið þar sem hann talar um þær vísbendingar sem hann hefur fengið um það hvar Dimma gæti haldið sér.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

„Lifa snýst um lífið sem þú lifir í dag og lífið sem þú vilt geta lifað síðar.“
Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir
Innlent

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði
Heimur

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd
Heimur

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd

Íbúar fengu óboðinn átta kílóa gest við gluggann
Myndband
Heimur

Íbúar fengu óboðinn átta kílóa gest við gluggann

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Sparkaði í dróna og hæfði fyrirsætu beint í andlitið
Myndband
Heimur

Sparkaði í dróna og hæfði fyrirsætu beint í andlitið

Viðurkennir að hafa skotið fólk sem leit út fyrir að vera múslimar
Heimur

Viðurkennir að hafa skotið fólk sem leit út fyrir að vera múslimar

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ
Pólitík

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina
Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina

Íslenskur kjörfaðir háns kom inn í líf háns þegar hán var tíu ára
Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur
Myndir
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni
Myndir
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Loka auglýsingu