Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hrafninn Dimma gaf Jóhanni Helga gjöf

„Við erum öll eins innan við beinið“

Jóhann Helgi og Dimma
Jóhann Helgi og Dimma Dimma er þekkt fyrir gjaf­mildi sína. Mynd: Facebook

Jóhann Helgi Hlöðvers­son hefur alið hrafn­inn Dimmu upp síðan hún fannst blaut og hrakin á Selfossi sem ungi en sam­band þeirra er hreint út sagt ein­stakt. Hefur Mannlíf áður fjallað um vin­ina.

Jóhann Helgi skrif­aði Facebook-færslu í dag um gjöf sem hann fékk frá Dimmu en það var fjöður úr henni.

„Dimma er fal­leg sál. Á leið­inni í rækt­ina í morgun sagði Magga, Jói … Dimma er að reyna ná sam­bandi við þig! Ég snéri mér að búr­inu hennar og sá að hún reyndi að ná athygli minni með því að rétta út úr búr­inu stóra fjöður úr sjálfri sér.“

Þannig hefst frá­sögn Jóhanns Helga, sem í næstu orðum seg­ist hafa spurt Dimmu sína hvort fjöðrin væri handa sér og auð­vitað svar­aði fugl­inn.

„Ég kraup niður að henni og spurði hana hvort hún ætl­aði að gefa mér þessa fjöður? Hún rétti mér fjöðr­ina og sleppti henni í lófann minn og þegar ég sagði VÁÁ Dimma! Ætlar þú að gefa pabba þessa fjöður? Þá setti hún haus­inn niður og dill­aði stél­inu ótt og títt og var greini­lega mjög ánægð með mín við­brögð yfir þess­ari gjöf.“

Segir Jóhann Helgi að Dimma hafi áður gefið honum fjöður og segir hana ákaf­lega þakk­láta og gjaf­milda:

„Dimma er orðin fimm eða sex ára og hefur áður fært mér fjöður frá sér með sömu við­höfn og lát­bragði. Dimma þakkar mér einnig oft fyrir þegar ég færi henni eitt­hvað sér­stak­lega gott í mat­ar­dall­inn. Hún er ákaf­lega gjaf­mild og gefur frá sér mat til hund­anna og er einnig farin að fæða tvo hrafna sem líta til hennar af og til.“

Að lokum seg­ist Jóhann Helgi aldrei hafa vanið sig á að gefa dýr­unum sínum nammi þegar hann hefur þjálfað þau, heldur aðeins hrós og seg­ist hafa tekið eftir því að allar dýra­teg­undir séu eins innan við beinið.

„Ég hef aldrei vanið mig á að gefa dýr­unum mínum nammi við þjálfun heldur nota ég ein­ungis hrós. Ég hef tekið eftir því að við erum öll eins innan við beinið og skiptir þá engu máli af hvaða dýra­teg­und við telj­umst vera:) Dimma tekur undir mál­tækið “Sælla er að gefa en þiggja”.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers