
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af nokkrum málum í dag, meðal annars vegna þjófnaðar, aksturs undir áhrifum áfengis og fíkniefna, samkvæmishávaða og elds í íbúðarhúsnæði.
Tilkynnt var um þjófnað úr matvöruverslun þar sem aðili var sagður í mjög annarlegu ástandi og veittist að starfsmönnum verslunarinnar. Lögregla handtók viðkomandi á vettvangi og var hann vistaður í fangaklefa vegna ástands síns.
Í öðru máli var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Að blóðsýnatöku lokinni var viðkomandi látinn laus.
Lögreglu barst einnig tilkynning um samkvæmishávaða í heimahúsi. Lögregla fór á vettvang og bað húsráðanda að lækka hljóðstyrk.
Þá var tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun þar sem lögregla fór á vettvang og var málið leyst með vettvangsskýrslu.
Einnig barst tilkynning um innbrot á kaffihúsi. Gerandi var farinn af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn og er málið nú til rannsóknar.
Síðar um daginn var tilkynnt um eld í íbúð í fjölbýlishúsi. Lögregla og slökkvilið fóru á vettvang, en allir íbúar voru komnir út úr íbúðinni þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Eldurinn kviknaði út frá kerti en slökkviliði tókst að slökkva hann fljótt. Ekki reyndist þörf á frekari rýmingu hússins.

Komment